Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi
Um verslunarmannahelgina verður haldið 15. unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi. Þar munu ýmsir ungir íþróttamenn og konur etja kappi saman og þar á meðal verður keppt í hestaíþróttum. Skráningu á mótið lýkur á miðnætti þann 29. júlí og er keppnisgjaldið 6.000 kr. Skráning fer fram hér
Dagskrá mótsins er eftirfarandi :
Laugardagur
Keppni hefst kl. 11:00
Keppni lýkur kl. 17:00
Sunnudagur
Keppni hefst kl. 11:00
Keppni lýkur kl. 16:00
Flokkarnir og greinarnar á mótinu er eftirfarandi:
Keppnisflokkar:
Börn 11 – 13 ára
Unglingaflokkur 14 – 17 ára
Ungmennaflokkur 18 ára
Keppnisgreinar:
Tölt og fjórgangur 11 – 13 ára
Tölt, fjórgangur og fimmgangur 14 – 17 ára
Tölt, fjórgangur og fimmgangur 18 ára
Keppt er samkvæmt reglum Landssambands hestamannafélaga og verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni.
Nánari upplýsingar á http://www.umfi.is/umfi09/unglingalandsmot/
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH