Unn Krogen aftur til Íslands
Vegna fjölda áskoranna mun Unn Krogen halda annað námskeið á Íslandi dagana 17-20 mars, eða á fimmtudegi, föstudegi og sunnudegi (frí á laugardegi). Námskeiðið verður í formi einkatíma og haldið að Borg í Þykkvabæ. Mikil ánægja var með síðasta námskeið sem Unn hélt í Rangárhöllinni í janúar en hún hefur gríðarlega reynslu, bæði sem þjálfari og reiðkennari.
Námskeiðið kostar 30 þúsund krónur. Skráning á netfangið [email protected] eða hjá Daníeli Jónssyni í síma 860-3559
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH