Unn leiðir
Heimsbikarmótið í Óðinsvéum, World Toelt, hófst með pompi og prakt í morgun. Nú þegar forkeppni í fjórgangi er hálfnuð leiðir Unn Kroghen Aðalsteinsson á Hrafndyni frá Hákoti, en þau hlutu einkunnina 6,97. Annar sem stendur er Thomas Rørvang og Ylur frá Hvítanesi sem keppir í ungmennaflokki. Enn eiga þó eftir að koma fram margir sterkir hestar
Klukkan 9, á íslenskum tíma, hefst fyrri hluti forkeppni í slaktaumatölti. Kl. 10.30 heldur svo forkeppni í fjórgangi áfram. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á mótinu gegnum heimasíðuna worldtoelt.dk.
Fimm efstu eftir fyrri hluta forkeppninnar:
Unn Kroghen Aðalsteinsson – Hrafndynur fra Hàkoti 6,97
Thomas Rørvang – Ylur frá Hvítanesi 6,90
Anne Stine Haugen – Kristall frá Jarðbrú 6,83
Louise Löfgren – Gloi från Nöddegården 6,67
Kristine B Jørgensen – Týr frá Þverá II 6,63
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH