Uppfærðar reglur um keppni í gæðingafimi LH
Gæðingafiminefnd LH hélt prufumót í byrjun febrúar þar sem keppt var eftir nýjum reglum LH um gæðingafimi til að fá reynslu á reglurnar. Að móti loknu gerði nefndin breytingar á nokkrum atriðum.
Þær breytingar sem gerðar voru frá því reglurnar voru birtar í haust eru:
- Knapi má nýta sér frjálsa æfingu oftar en einu sinni.
- Lágmarksfjöldi æfinga hefur lækkað á öllum stigunum. Á 2. og 3.stigi hefur æfingafjöldi lækkað úr 5 æfingum í 4 æfingar. Á 1.stigi hefur æfingafjöldi lækkað úr 4 æfingum í 3 æfingar.
- Fet má sýna hvar sem er á vellinum til hámarkseinkunnar.
- Eftirfarandi klausa bættist við á stigi 2 og 3:
Allar æfingar eru framkvæmdar án stuðnings við vegg. Knapi skal miða við að æfingin sé framkvæmd a.m.k. tveimur metrum frá veggnum.
Knapi getur hæst hlotið einkunnina 5 (æfingin sjálf hlýtur einkunnina 10) sé æfingin framkvæmd upp við vegg. - Eftirfarandi klausa bættist við á stigi 2 og 3:
Til þess að knapi sem ekki sýnir skeið hljóti fullnaðareinkunn fyrir tölt þarf hann að sýna tvær útfærslur á tölti hið minnsta. Hægt tölt, milliferðar tölt, greitt tölt, tölt við slakan taum eða tölt með hraðamun. Til að hægt sé að hljóta hámarkseinkunn fyrir tölt (7 eða hærra í einkunn) þarf knapi að sýna bæði hægt tölt og greitt tölt. Hægt tölt þarf að vera sem nemur 2/3 af langhlið. - Gerðar voru nokkrar breytingar á 1. stigi (sjá meðfylgjandi skjal)
- Útskýringar á því hvernig knapi sækir um frjálsa æfingu hafa verið bættar.
Uppfærðar reglur um gæðingafimi LH eru hér.
www.lhhestar.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH