Uppgangur fyrir vestan
Það er mikið um að vera á vesturlandinu en Eiðfaxi kíkti vestur í liðinni viku og tók hús á nokkrum tamningarmönnum þar. Fyrst lá leiðin til Benedikts Þórs Kristjánssonar en hann er að temja í hesthúsahverfinu á Akranesi ásamt Einari Gunnarssyni. Þeir félagar eru með fullt hús af tamningarhrossum. Lagði Benni m.a. á stóðhest undan Kvisti frá Skagaströnd og fluggóðan klárhest undan Braga frá Kópavogi.
Þá næst var tekið hús á Hjörleifi og Sif á Einhamri en þau rækta hross út frá Bylgju frá Sturlureykjum. Jón Bjarni Smárason tamningarmaður þar lagði á nokkur mjög spennandi tryppi m.a. Stáladóttir undan Gustu frá Litla-Kambi, bróðir hennar undan Orra sem er álitlegur stóðhestur á fjórða vetur, og Sæsdóttir undan Freyju frá Litla-Kambi. Auk þess sem lagt var á tvo álitlega geldinga annan undan heimahestinum Andra en hinn undan Kráki frá Blesastöðum.
Eftir þetta lá leiðin í Steinsholt þar sem Jakob Svavar Sigurðsson ræður ríkjum. Hann lét einna best af tryppum undan Auð frá Lundum, Glotta frá Sveinatungu og Kvisti frá Skagaströnd en hann er m.a. með mjög spennandi hryssu undan Hendingu frá Úlfsstöðum og Kvisti. Af öðrum toppættuðum hrossum sem þar eru inni er hryssa undan Hátíð frá Úlfsstöðum og Gaumi frá Auðsholtshjáleigu, Auðnu frá Lundum og Kvisti. Starfsfólkið á Steinsholti var langt komið með útreiðar þegar okkur bar að garði en Jakob lagði á Straum frá Skrúð, son Söndru frá Skrúð og Glotta. Straumur var í 4 vetra flokki stóðhesta á LM2012 en Jakob segir góðan stíganda vera í folanum.
Svo var endað á að líta við hjá Ingibergi Jónssyni en hann er iðinn við kolann í tamningum og er m.a. að þjálfa Ægi frá Efri-Hrepp og Pilt frá Akranesi. Best leist honum á hryssu á fjórða vetri undan Arði frá Brautarholti, stóra og þroskamikla hryssu.
Það er sannarlega mikill uppgangur á Skaganum en í næstu heimsókn vestur væri gaman að kíkja við hjá ræktendunum á Skipaskaga, hjá Smára Njálssyni ræktanda Þeys frá Akranesi og einnig sjá hvert stefnt er með gæðinginn Vaðal frá Akranesi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH