Upplýsingar vegna skráninga á Fjórðungsmót
Keppt verður í hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar; A-flokki gæðinga, B-flokki gæðinga, B-flokki áhugamanna, B-flokki ungmenna, unglingaflokki og barnaflokki. Einnig verður keppt í Tölti T1, Tölti T3 og Tölti T3 17 ára og yngri sem er inn í sportfeng og kappa undir flokknum: Tölt T3 Fullorðinsflokkur – 3. flokkur. Svo 100 m skeiði með fljótandi starti en þessar greinar eru opnar og öllum heimilt að skrá sig í þær.
Í gæðingakeppninni verður 1 hestur í braut í forkeppni og 8 hestar í A-úrslitum. Ekki verða riðin B úrslit í gæðingakeppni. Í 100 m fljúgandi skeiði getur hver knapi aðeins verið með einn hest svo að ekki komi til óþarfa tafa í þessum dagskrárlið. Hvert hestamannafélag með keppnisrétt í gæðingahlutanum á mótinu má skrá allt að 18 hesta í hvern flokk. Að auki má hvert félag skrá 2 varahesta.
Keppendur bera ábyrgð á að skrá sín hross í gegnum Sportfeng, www.sportfengur.com og greiða þátttökugjöld. Þátttakandalisti fyrir gæðingakeppni mótsins verður sendur á formenn aðildarfélaga til samþykkis og telst samþykki félags jafngildi skráningar á mótið.
Íþróttahluti mótsins er opinn og því er ekki þörf á samþykki félaga fyrir þeim hluta. Síðasti skráningardagur og síðasti dagur til greiðslu skráningagjalda er 30. júní (kl 23.59) Gjald fyrir hverja skráningu er
kr: 7.500,- Mjög mikilvægt er að send sé kvittun á [email protected] og fram komi í texta fyrir hvern er greitt ásamt skráningarnúmeri sem kemur við skráningu í Sportfeng.
Um allar skráningar á mótið gildir: Allir hestar þurfa að sjálfsögðu að vera skráðir í WorldFeng til þess að hægt sé að skrá þá á mótið. Athuga þarf sérstaklega að hesturinn sé skráður á réttan eiganda, að öðrum kosti koma upp vandamál við skráninguna vegna tengingar við WorldFeng.
Unnt er að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected] ef spurningar vakna vegna skráninganna. Engar skráningar eru teknar gildar nema að skráningargjald hafi verið greitt. Afskráningar skulu berast á tölvupósti.
Allar upplýsingar um beitarhólf veitir Elín Ósk í síma 848-2016 eða á [email protected] Stíupláss á svæðinu eru því miður orðin fullbókuð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH