Upprennandi stjörnur koma fram
Konsert frá Hofi kemur fram á Stóðhestaveislunni.
Uppselt er á Stóðhestaveisluna sem haldin verður í Sprettshöllinni laugardaginn 11. apríl, skv, tilkynningu.
„Hátt í 60 snilldarhross munu gleðja augað og alveg óhætt að lofa áhorfendum góðum skammti af gæsahúð. Á meðal góðra gesta má nefna eina af kynbótastjörnum síðasta árs, heimsmethafann Konsert frá Hofi, sem kemur nú fram í fyrsta sinn síðan á Landsmóti í fyrra. Fleiri ungstirni mæta á svæðið, t.d. þeir Erill frá Einhamri, Herkúles frá Ragnheiðarstöðum og Ljósvaki frá Valstrýtu – allt saman upprennandi stjörnur í hrossaræktinni.
Glæsilegir klárhestar munu einnig mæta í bunkum, t.d. þeir Andri frá Vatnsleysu, Bragur frá Ytri-Hól, Hreyfill frá Vorsabæ, Hringur frá Gunnarstöðum og Hrímnir frá Ósi svo einhverjir séu nefndir.
Afkvæmahópar verða einnig á sínum stað. Heiðurshestur sýningarinnar, Sær frá Bakkakoti, verður með sína fulltrúa á svæðinu auk þess sem afkvæmi Geisla frá Sælukoti, Sólons frá Skáney, Vilmundar frá Feti og fleiri góðra kynbótahesta mæta á svæðið.
Af fleiri frábærum hrossum sem munu gleðja augað, þá má nefna Krók frá Ytra-Dalsgerði, bræðurna Álffinn og Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum, Hryn frá Hrísdal, Blæ og Eld frá Torfunesi, Hrafn frá Efri-Rauðalæk og Kolskegg frá Kjarnholtum, auk allra hinna snillinganna sem ekki er pláss til að telja upp hér,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar. Stóðhestaveislan hefst klukkan 20:00 á laugardaginn. Húsið opnar klukkan 17:00 og verður opnað inn í sal kl. 18:00, því er fólk hvatt til að vera stundvíslega á ferðinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH