Uppskeruhátíð hestamanna verður 12. október
Hátíðin mun fara fram þann 12. október í Gullhömrum en miðasala hefst þann 11. september nk. Á hátíðinni verður boðið upp á steikarhlaðborð og mun fara fram árleg verðlaunaafhending knapa og ræktunarbúa. Í lokin verður síðan haldið alvöru sveitaball.
“Í fyrra seldist upp á hátíðina og hvetjum við því alla áhugasama um að tryggja sér miða í tíma. Miðasala fer fram á heimasíðu LH. Verð á hátíðina er 14.900kr.,” segir í tilkynningu frá Landsambandi hestamannafélaga.
Þeir sem vilja bóka sig saman á borð er bent á að kaupa miðana sína í einni pöntun eða að öðrum kosti senda óskir um sætaskipan á joninasif@lhhestar.is.