Uppskeruhátíð Hrossaræktarsambands Skagfirðinga 2019
Bergur Gunnarsson og Rósa María Vésteinsdóttir ræktendur Vöku frá Narfastöðum en hún var hæst dæmda hrossið í Skagafirði í ár
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsambands Skagfirðinga var haldin föstudaginn 22.nóvember í Ljósheimum.
Alls voru 116 hross með skagfirskan uppruna fulldæmd í kynbótadómi á árinu og af þeim fóru 79 einstaklingar eða 68% í 8 eða hærra í aðaleinkunn. Það var því hörð samkeppnin um efstu sætin og eftirfarandi hross voru verðlaunuð sem einstaklingar. Það eru eingöngu félagar í HSS sem geta hlotið verðlaun sem ræktendur.
4 vetra hryssur
- Álfamær frá Prestsbæ B. 8,33 H. 8,41 A. 8,38 Ræktendur Inga og Ingar Jensen og Prestsbær ehf
- För frá Kýrholti B. 8,39 H. 7,96 A. 8,13 Ræktandi Steinþór Tryggvason
- Kamma frá Sauðárkróki B. 8,07 H. 8,01 A. 8,03 Ræktandi Sauðárkróks-Hestar
4 vetra hestar
- Grettir frá HvalnesiB. 8,11 H. 7,93 A. 8,0 Ræktandi Hvalnesbúið ehf
- Kjalar frá Ytra-VallholtiB. 8,09 H.7,71 A. 7,86 Ræktandi Vallholt ehf
5 vetra hryssur
- Þrá frá PrestsbæB. 8,31 H. 8,76 A. 8,58 Ræktendur Inga og Ingar Jensen og Prestbær ehf
- Fönn frá HafsteinsstöðumB. 8,03 H. 8,23 A. 8,15 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
- Lokbrá frá Hafsteinsstöðum B. 8,0 H. 8,17 A. 8,10 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
5 vetra stóðhestar
- Skutull frá HafsteinsstöðumB.7,96 H. 8,67 A.8,39 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
- Álmur frá Reykjavöllum B. 8,43 H. 7,85 A. 8,08 Ræktandi Hanna Kristín Pétursdóttir
- Berserkur frá Miðsitju B. 8,17 H.7,72 A. 7,90 Ræktandi Miðsitja ehf
6 vetra hryssur
- Stjörnuspá frá Þúfum B. 8,63 H. 8,47 A.8,53 Ræktendur Gísli Gíslason og Mette Mannseth
- Rispa frá HólumB. 8,35 H.8,60 A. 8,50 Ræktandi Hólaskóli
- Eldkatla frá Sauðárkróki B. 8,25 H. 8,21 A. 8,23 Ræktandi Guðmundur Sveinsson
6 vetra stóðhestar
- Sólon frá ÞúfumB. 8,38 H. 8,71 A. 8,58 Ræktendur Gísli Gíslason og Mette Mannseth
- Rjóður frá HofiB. 8,50 H. 8,45 A. 8,47 Ræktandi Lilja Sigurlína Pálmadóttir
- Baron frá BræðraáB. 8,08 H.8,62 A. 8,40 Ræktandi Pétur Vopni Sigurðsson
7 vetra og eldri hryssur
1.Vaka frá Narfastöðum B. 8,27 H. 8,98 A. 8,70 Ræktendur Rósa MaríaVésteinsd og Bergur Gunnarsson
- Þökk frá PrestsbæB. 8,44 H. 8,76 A. 8,63 Ræktendur Sigríður Gunnarsd og Þórarinn Eymundsson
- Skipting frá PrestsbæB. 8,29 H. 8,66 A. 8,51 Ræktendur Inga og Ingar Jensen og Prestbær ehf
7 vetra og eldri stóðhestar
- Haukdal frá Hafsteinsstöðum B.8,18 H. 8,94 A.8,64 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson
- Korgur frá GarðiB. 8,16 H.8,74 A. 8,51 Ræktandi Jón Sigurjónsson
- Óskar frá BreiðstöðumB. 8,18 H. 8,62 A. 8,45 Ræktandi Guðrún Astrid Elvarsdóttir
Hæst dæmda kynbótahross í Skagafirði 2019 er Vaka frá Narfastöðum og fær til varðveislu Sörlabikarinn sem er veittur því hrossi sem hæstan dóm hlýtur á kynbótasýningu á árinu og hefur skagfirskan uppruna og eiganda. Vaka hlaut í aðaleinkunn 8,70 (Hæfileikar 8,98 Bygging 8,27). Hún er undan Heklu frá Hofsstaðaseli og Vita frá Kagaðarhóli. Eigendur og ræktendur Rósa María Vésteinsdóttir og Bergur Gunnarsson, Narfastöðum.
Kynbótaknapi ársins í Skagafirði 2019 er Þórarinn Eymundsson og fær hann Kraftsbikarinn til varðveislu. Þennan bikar hlýtur sá skagfirski knapi sem nær bestum árangri á kynbótasýningum á árinu. Hrossin þurfa að ná að lágmarki 8,0 í hæfileikaeinunn eftir aldursleiðréttingu til að telja til stiga. Bikarinn er gefinn af Eymundi Þórarinssyni, Saurbæ.
- sæti Þórarinn Eymundsson, Sauðárkróki 18 stig
- sæti Bjarni Jónasson, Narfastöðum 17 stig
- sæti Mette Mannseth, Þúfum8 stig
- sæti Gísli Gíslason, Þúfum7 stig
Hrossaræktarbú ársins í Skagafirði 2019 er Þúfur og fékk afhendann Ófeigsbikarinn sem gefinn er af Ófeigsfélaginu. Þau bú sem hafa unnið titilinn „Hrossaræktarbú Skagafjarðar“ áður þurfa að byggja stigin á nýjum hrossum til þess að geta hlotið titilinn aftur eins og Þúfur hafa gert en þau unnu þennan titil árið 2016. Valið byggir bæði á árangri kynbótahrossa og keppnishrossa hjá búinu.
1. sætiÞúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth – 7 stig
2-3. sæti Hafsteinsstaðir, Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson – 6 stig
2-3. sæti Prestsbær, Inga og Ingar Jensen – 6 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH