Uppskeruhátíð hrossaræktenda og yngri flokka í Skagafirði
Hafsteinsstaðir er eitt af tilnefndum búum í hópi ræktunarbúa ársins - á myndinni er Haukdal frá Hafsteinsstöðum og Agnar Snorri Stefánsson
Verður haldin í Ljósheimum föstudaginn 22.nóvember 2019 kl. 20.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú hæst dæmdu kynbótahrossin í hverjum aldursflokki.
Sörlabikarinn verður veittur fyrir hæst dæmda kynbótahrossið innan HSS.
Kraftsbikarinn verður veittur kynbótaknapa ársins í Skagafirði, en þar eru tilnefnd (í stafrófsröð): Bjarni Jónasson, Gísli Gíslason, Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson.
Ófeigsbikarinn verður veittur fyrir hrossaræktarbú ársins í Skagafirði tilnefnd eru í stafrófsröð: Hafsteinsstaðir, Prestsbær, Þúfur.
Í barnaflokki hjá Hestamannafélaginu Skagfirðingi eru tilnefnd (í stafrófsröð) Arndís Katla Óskarsdóttir, Freyja Siff Busk Friðriksdóttir, Ingimar Hólm Jónsson, Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir, Sveinn Jónsson og Trausti Ingólfsson.
Í unglingaflokki hjá Hestamannfélaginu Skagfirðingi eru tilnefnd (í stafrófsröð) Björg Ingólfsdóttir, Freydís Þóra Bergsdóttir, Guðný Rúna Vésteinsdóttir, Herjólfur Hrafn Stefánsson, Ingibjörg Rós Jónsdóttir, Júlía Kristín Pálsdóttir, Jódís Helga Káradóttir, Katrín Ösp Bergsdóttir, Kristinn Örn Guðmundsson, Ólöf Bára Birgisdóttir, Sara Líf Birgisdóttir, Stefanía Sigfúsdóttir og Þórgunnur Þórarinsdóttir.
Kaffiveitingar.
Hvetjum verðlaunahafa og aðstandendur þeirra sérstaklega til að mæta en allir hestaáhugamenn í Skagafirði eru velkomnir.
Stjórn HSS og æskulýðsnefnd Hestamannfélagsins Skagfirðings
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH