Uppsveitamenn keppa í tölti
Sameiginlegt töltmót hestamannafélaganna í Uppsveitunum, Loga Smára og Trausta verður haldið í Reiðhöllinni á Flúðum miðvikudagskvöldið 1. apríl og hefst mótið klukkan 17:30
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Barnaflokk – (T7): sýnt hægt tölt og fegurðartölt, 2 inná í einu undir leiðsögn þuls.
- Unglingaflokk (T3): riðið hefðbundið tölt prógram, tveir inná í einu undir leiðsögn þuls.
- Ungmennaflokk (T3)
Í fullorðinsflokki verður keppt í tveimur flokkum;
- II Flokkur – minna keppnisvanir (T3)
- I Flokkur – meira keppnisvanir (T1) hefðbundið tölt prógram, einn inná í einu.
Skráningargjöld eru 2500 fullorðinn/ungmenni fyrir fyrsta hest, 1500 fyrir næstu skráningar. 1500 kr fyrir börn og unglinga.
Skráning fer fram í gegnum sportfeng.
Skráning opnar föstudagskvöldið 27. mars og stendur fram að miðnætti þriðjudagskvöldið 31. mars.
B-úrslit verða riðin ef þáttaka í flokk fer yfir 10 skráningar, annars verða eingöngu riðin A-úrslit.
Við hvetjum félagsmenn eindregið til að skrá sig, hvort sem er áhugamenn eða atvinnumenn.
Mótið er góður vettvangur til að fá mat á hesta sína eða prófa hesta fyrir lokamótið í Uppsveitadeildinni.
Skráning fer fram í gegnum sportfeng á eftirfarandi síðu:http://motafengur.skyrr.is/Skraningkort.aspx?mode=add
Veljið hestamannafélagið Trausta sem mótshaldara til þess að finna mótið.
Hafi knapar óskir um uppá hvaða hönd þeir vilji ríða, er mikilvægt að það komi fram í skráningunni.
Þetta kemur fram í tilkynningum frá mótanefndum félaganna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH