Úrslit folaldasýningar að Borg
Hún tókst eins og í sögu Folaldasýningin á Borg síðastliðinn laugardag. Þorvaldur Kristjánsson og Jón Vilmundarson sáu um að dæma folöldin en eigendur komu um morguninn til að fá byggingadóm, en hæfileikadómar fóru fram eftir hádegið. 16 hestfolöld og 11 merfolöld voru dæmd og mikið af efnilegum gripum að sjá. Langefsta folaldið og handhafi Hrafnarsbikarsins þetta árið er Bragi frá Litlu-Tungu. Bragi er undan tveimur stjörnum, þeim Álfi frá Selfossi og Björk frá Litlu-Tungu sem sló í gegn einungis 4. Vetra gömul á Landsmóti á Hellu 2004. Bragi var með 44 stig fyrir byggingu af 54 mögulegum, þar af fullt hús stiga fyrir hálslengd og fótalengd. Bragi hlaut einnig fullt hús stiga fyrir skapgerð og 48 stig fyrir hæfileikana samanlagt, þar af 5 stig af 5 mögulegum fyrir skreflengd, mýkt, rými og léttleika. Einkunnin 5 sást ekki nema í undantekningartilfellum og því um verulega flott folald að ræða. Einkunnin samanlagt voru 92 stig af 105 mögulegum.
Efsta hryssan var Fold frá Mið-Seli en hún var jafnframt með hæstu einkunn fyrir byggingu, 46 stig. Fold er undan Aron frá Strandarhöfði og Freyju Baldursdóttir frá Kvistum en Freyja er einnig móðir stóðhestsins Þyts frá Neðra-Seli. Fold hlaut 39 stig fyrir hæfileika og 85 stig í aðaleinkunn.
Álfssonur var einnig í öðru sæti í flokki hesta, Sjálfur frá Borg, með 45 stig fyrir byggingu og 87 stig í aðaleinkunn, í þriðja sæti varð Sökkull frá Dalbæ, einnig undan Álfi og Auðlind frá Dalbæ.
Verðlaunagripir voru gefnir af Kanslaranum á Hellu og kunnum við þeim Helga Bjarna og Guðrúnu bestu þakkir fyrir en þau eru einnig þekktir hrossaræktendur á Lýtingsstöðum og áttu tvö folöld á sýningunni, hryssa þeirra Ögrun komst í úrslit í hryssuflokki og endaði í 4. Sæti með 82 stig. Ögrun er undan Krák frá Blesastöðum og Björg frá Kirkjubæ. Í þriðja sæti hafnaði Tign frá Skíðbakka 3, jörp undan Mídasi frá Kaldbak og Mónu frá Skíðbakka.
Íslenskir Sjávarréttir, Matvæladreifing og Kökuval styrktu samkomuna með veitingum, en hægt var að gæða sér á nýbökuðu rúgbrauði með síld og hákarli meðal annars.
En úrslit sýningarinnar í heild sinni eru eftirfarandi:
Folaldasýning Borg
Úrslit
24.okt.09
Dómarar: Þorvaldur Kristjánsson og Jón Vilmundarson
Hestar
1 Bragi frá Litlu-Tungu
IS2009186955 – Brúnn
F: Álfur frá Selfossi
M: Björk frá Litlu-Tungu (1.v.)
MF: Spuni frá Miðsitju
Eig./rækt.: Vilhjálmur Þórarinsson
Bygging: 44 Skap/hæfil.: 48
Aðaleinkunn: 92 stig.
2 Sjálfur frá Borg
IS2009181200 – Rauður
F: Álfur frá Selfossi
M: Ógn frá Búð
MF: Dósent frá Brún
Eig./rækt.: Hestaborg ehf.
Bygging: 45 Skap/hæfil.: 42
Aðaleinkunn: 87 stig.
3 Sökkull frá Dalbæ
IS2009187726 – Rauðstjörnóttur
F: Álfur frá Selfossi
M: Auðlind frá Dalbæ (1.v.)
MF: Víkingur frá Voðmúlastöðum
Eig./rækt.: Már Ólafsson
Bygging: 41 Skap/hæfil.: 42
Aðaleinkunn: 83 stig.
4 Laxdal frá Borg
IS2009181202 – Fífilbleikur
F: Ómur frá Kvistum
M: Perla frá Útverkum
MF: Taktur frá Árnagerði
Eig./rækt.: Jóhann og Elka, Borg
Bygging: 40 Skap/hæfil.: 44
Aðaleinkunn: 84 stig.
5 Segull frá Vestra-Fífilholti
Jarpur
F: Roði frá Múla
M: Von frá Vestra-Fífilholti (1.v.)
MF: Óður frá Brún
Eig./rækt.: Þór Gylfi Sigurbjörnsson
Bygging: 43 Skap/hæfil.: 41
Aðaleinkunn: 84 stig.
6 Hermann frá Dalbæ
IS2009187727 – Fífilbleikur
F: Meyvant frá Feti
M: Hemja frá Dalbæ (1.v.)
MF: Hamur frá Þóroddsstöðum
Eig./rækt.: Þóranna Másdóttir
Bygging: 41 Skap/hæfil.: 42
Aðaleinkunn: 83 stig.
7 Skotti frá Bjóluhjáleigu
Rauðhöttóttur, skottóttur
F: Sinir frá Hábæ
M: Rauðka frá Bjóluhjáleigu
Eig.: Einar Hafsteinsson
Bygging: 40 Skap/hæfil.: 42
Aðaleinkunn: 82 stig.
8 Sproti frá Borg
IS2009181203 – Móálótt, tvístj. Hringeygður
F: Auður frá Lundum
M: Spes frá Krossi
MF: Orion frá Litla-Bergi
Eig.: Borgarbúar og Skíðbakki 3
Bygging: 37 Skap/hæfil.: 44
Aðaleinkunn: 81 stig.
9 Birtir frá Bala
IS2009186399 – Jarpsokkóttur
F: Tindur frá Varmalæk
M: Rót frá Hrafntóftum
MF: Krummi frá Lækjarbotnum
Eig./rækt.: Jón Þórarinn Magnússon
Bygging: 40 Skap/hæfil.: 41
Aðaleinkunn: 81 stig.
10 Magnús frá Búð
Brúnn
F: Friður frá Halakoti
M: Glíma frá Skíðbakka
MF: Sleipnir frá Ey
Eig./rækt.: Kristmundur og Helga, Búð
Bygging: 41 Skap/hæfil.: 40
Aðaleinkunn: 81 stig.
11 Óskar frá Þorlákshöfn
IS2009187198 – Brúnn
F: Álfur frá Selfossi
M: Koltinna frá Þorlákshöfn (1.v.)
MF: Kolskeggur frá Kjarnholtum
Eig./rækt.: Þórarinn Óskarsson
Bygging: 42 Skap/hæfil.: 39
Aðaleinkunn: 81 stig.
12 Örvar frá Lýtingsstöðum
IS2009181780 – Brúnn
F: Kyndill frá Lýtingsstöðum
M: Blíða frá Skíðbakka 3
MF: Jarl frá Búðardal
Eig./rækt.: Helgi Bjarni og Guðrún
Bygging: 43 Skap/hæfil.: 37
Aðaleinkunn: 80 stig.
13 Óðinn frá Ölversholti
IS2009181766 – Brúnn
F: Vilmundur frá Feti
M: Spá frá Hamrafossi
MF: Feykir frá Hafsteinsstöðum
Eig./rækt.: Eiríkur Benjamínsson
Bygging: 40 Skap/hæfil.: 39
Aðaleinkunn: 79 stig.
14 Óskasteinn frá Hvítárholti
IS2009188256 – Jarpur
F: Óskar frá Blesastöðum
M: Ósk frá Hvítárholti (1.v.)
MF: Þröstur frá Blesastöðum
Eig./rækt.: Sigríður H. Sigurðardóttir
Bygging: 36 Skap/hæfil.: 40
Aðaleinkunn: 76 stig.
15 Vilmundur Rúnar frá Skíðbakka 3
IS2009184502 – Leirljós, tvístj.
F: Glotti frá Sveinatungu
M: Edda frá Eystri-Torfastöðum
MF: Þokki frá Garði
Eig./rækt.: Erlendur Árnason
Bygging: 35 Skap/hæfil.: 35
Aðaleinkunn: 70 stig.
16 Leikur frá Lyngheiði
IS2009125274 – Rauðtvístjörnóttur
F: Hágangur frá Narfastöðum
M: Valborg frá Dallandi
MF: Tývar frá Kjartansstöðum
Eig./rækt.: Ragnheiður Ásta Sigurðard.
Bygging: 33 Skap/hæfil.: 33
Aðaleinkunn: 66 stig.
Hryssur
1 Fold frá Miðseli
IS2009286647 – Rauð
F: Aron frá Strandarhöfði
M: Freyja frá Kvistum
MF: Baldur frá Bakka
Eig./rækt.: Finnur Egilsson
Bygging: 46 Skap/hæfil.: 39
Aðaleinkunn: 85 stig.
2 Eyjarós frá Borg
IS2009281205 – Rauð
F: Roði frá Múla
M: Drífa frá Reykjavík (1.v.)
MF: Gustur frá Hóli
Eig./rækt.: Elka Guðmundsdóttir
Bygging: 39 Skap/hæfil.: 44
Aðaleinkunn: 83 stig.
3 Tign frá Skíðbakka 3
IS2009284500 – Jörp
F: Mídas frá Kaldbak
M: Móna frá Skíðbakka 3
MF: Óðinn frá Búðardal
Eig./rækt.: Erlendur Árnason
Bygging: 41 Skap/hæfil.: 42
Aðaleinkunn: 83 stig.
4 Ögrun frá Lýtingsstöðum
IS2009281778 – Rauðblesótt, sokkótt
F: Krákur frá Blesastöðum
M: Björg frá Kirkjubæ (1.v.)
MF: Trostan frá Kjartansstöðum
Eig./rækt.: Helgi Bjarni og Guðrún
Bygging: 41 Skap/hæfil.: 41
Aðaleinkunn: 82 stig.
5 Sól frá Þjóðólfshaga 1
IS2009281817 – Ljósjörpstjörnótt
F: Krákur frá Blesastöðum
M: Gnótt frá Skollagróf (1.v.)
MF: Vonar-Neisti frá Skollagróf
Eig./rækt.: Jón Styrmisson
Bygging: 38 Skap/hæfil.: 43
Aðaleinkunn: 81 stig.
6 Yrpa frá Stóra-Rimakoti
Jörp
F: Herkúles frá Stóra-Langadal
M: Stjarna frá Hagavík
MF: Förull frá Sandhólaferju
Eig./rækt.: Kristín og Valtýr, Rimakoti
Bygging: 38 Skap/hæfil.: 39
Aðaleinkunn: 77 stig.
7 Hraundís frá Borg
IS2009281201 – Móálótt, skjótt
F: Stæll frá Neðra-Seli
M: Eldborg frá Búð
MF: Glitnir frá Strandarhöfði
Eig./rækt.: Jóhann G. Jóhannesson
Bygging: 39 Skap/hæfil.: 36
Aðaleinkunn: 75 stig.
8 Héla frá Búð
Grá
F: Glæsir frá Litlu-Sandvík
M: Dúlla frá Ási
MF: Fálki frá Ási
Eig./rækt.: Kristmundur Hákonarson
Bygging: 38 Skap/hæfil.: 36
Aðaleinkunn: 74 stig.
9 Dásemd frá Húnakoti
IS2009286394 – Brún
F: Stæll frá Neðra-Seli
M: Drottning frá Hellatúni
MF: Orri frá Þúfu
Eig./rækt.: Albert Örn Áslaugsson
Bygging: 37 Skap/hæfil.: 36
Aðaleinkunn: 73 stig.
10 Vála frá Vestra-Fíflholti
Jörp
F: Vár frá Vestra-Fífilholti
M: Fiðla frá Gerðum
MF: Klængur frá Gerðum
Eig./rækt.: Ragnheiður Jónsdóttir
Bygging: 37 Skap/hæfil.: 36
Aðaleinkunn: 73 stig.
11 Náttrún frá Brekku
IS2009286393 – Móvindskjótt
F: Roði frá Húnakoti
M: Hnota frá Brekku
MF: Nói frá Vestur-Meðalholtum
Eig./rækt.: Brynja Rúnarsdóttir
Bygging: 35 Skap/hæfil.: 36
Aðaleinkunn: 71 stig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH