Úrslit Folaldasýningar Hrunamanna – myndir

  • 1. nóvember 2011
  • Fréttir
Úrslit Folaldasýningar Hrunamanna - myndir

Hrossaræktarfélag Hrunamanna hélt folaldasýningu í Reiðhöllinni á Flúðum á sunnudaginn 30.októmber. Þáttaka var ágæt, 23 folöld mættu til leiks. Dómarar voru Ársæll Jónsson í Eystra-Fróðholti og Albert Jónsson hinn þekkti knapi. Mörg fölöldin voru eiguleg og sýndu falleg tilþrif, sérstaklega í hryssufloknum.

Úrslit voru eftirfarandi:

Hestfolöld:
1. Stormur frá Hrepphólum jarpstjörnóttur F: Tvistur frá Hrepphólum M: Andvaka frá Hrepphólum
Ræktandi og eigandi Ólafur Stefánsson
 
2.Völusteinn frá Unnarholtskoti 3 Ljósaskjóttur F: Jósteinn frá Votmúla M: Vala frá Arnarhóli
Ræktandi og eigandi Styrmir Þór Þorsteinsson
 
3. Möttull frá Túnsbergi jarpstjörnóttur F: Mjölnir frá Hlemmiskeiði M: Særós frá Túnsbergi Rækt og eigendur Gunnar K Eiríksson og Magga S Brynjólfsdóttir
 
Merfolöld
1.Freyja frá Þórarinsstöðum rauðstjörnótt F: Freymóður frá Feti M: Þula frá Skollagróf
Rækt og eigandi Lilja Helgadóttir
 
2. Tinna frá Ásatúni brún F: Grímur Efra-Seli M: Næla frá Ásatúni
Rækt og eigendur Grímur Guðmundsson og Guðbjörg Jóhannsdóttir
 
3.NN frá Miðfelli 5 brúnskjótt F: Álffinnur frá Efri-Gegnishólum M: Aldvaka frá Miðfelli
Rækt og eigandi Magnús Gunnlaugsson

Ljómyndir frá Sigurði Sigmundssyni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link