Úrslit folaldasýningar í Faxaborg
Tuttugu og fimm folöld voru sýnd á folaldasýningu sem haldin var í Faxaborg sl. sunnudag.
Valberg Sigfússon, kynbótadómari, lagði mat á hrossin sem voru mörg hver glæsileg og vel ættuð að er fram kemur á vefsíðu Faxaborgar.
Úrslit urðu þessi.
1. sæti
Hrafnhetta frá Innri-Skeljabrekku IS2011235610 brúnskjótt/höttótt
Móðir: Nánd frá Miðsitju. Faðir: Álfur frá Selfossi.
Ræktandi og eigandi: Þorvaldur Jónsson
2.-4. sæti
Brynja frá Oddsstöðum 1 IS2011235715 grá/rauð stjörnótt
Móðir: Brák frá Oddsstöðum 1 Faðir: Krákur frá Blesastöðum 1A
Ræktandi og eigandi: Sigurður Oddur Ragnarsson
Fluga frá Einhamri IS2011235260 brún
Móðir: Freyja frá Litla-Kambi Faðir: Krákur frá Blesastöðum 1A
Ræktendur og eigendur: Sif Ólafsdóttir og Hjörleifur Jónsson
Gloría frá Kópareykjum rauð
Móðir: Gleði frá Kópareykjum Faðir: Glymur frá Skeljabrekku
Ræktendur og eigendur: Jón Eyjólfsson og Rebecca Dorn
Hestar:
1. sæti Sigurberg frá Eiðisvatni IS2011135289 jarpur
Móðir: Daladís frá Eiðisvatni Faðir: Heimur frá Votmúla 1
Ræktendur og eigendur: Ása Hólmarsdóttir og Hólmar Pálsson
2.-3. sæti
Frakkur frá Ferjukoti IS 2011136553 rauðblesóttur
Móðir: Gná frá Skáney Faðir: Asi frá Lundum
Ræktandi og eigandi: Heiða Dís Fjeldsted
Fálki frá Innri-Skeljabrekku IS2011135612 brúnstjörnóttur
Móðir: Brá frá Innri-Skeljabrekku Faðir: Dynjandi frá Innri-Skeljabrekku
Ræktandi og eigandi: Þorvaldur Jónsson
Áhorfendur völdu Flugu frá Einhamri sem fallegast folaldið að þeirra mati.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH