Úrslit folaldasýningar Náttfara
Þá liggja fyrir úrslit folaldasýningar Náttfara sem haldin var í Melaskjóli á Melgerðismelum á laugardaginn. Dómari var Eyþór Einarsson. Skráð voru til leiks 42 hryssur og 24 hestar ásamt 6 ungfolum fæddum 2008 og 2 ungfolum fæddum 2007.
Byggingadómar fóru fram fyrir hádegi og hófst svo veislan kl. 13.00. Óhætt er að segja að stórbóndinn Jón Elvar á Hrafnagili og kona hans Berglind hafi verið sigurvegarar sýningarinnar þegar að á heildina er litið en þau áttu hestfolaldið í þriðja sæti sem var jafnframt kosið glæsilegasta folald sýningarinnar af áhorfendum, ásamt tveimur efstu hryssunum líka. Þá áttu þau folana í öðru og þriðja sæti fædda 2008 og folann í öðru sæti fædda 2007 en þar voru bara 2 skráðir til leiks. Jónas og Kristín Litla-Dal áttu 2 efstu hestana og svona til gamans að þá eru efsta hryssan og efsti hesturinn bæði undan Þokka frá Kýrholti.
Nánari úrslit :
Hryssur
1. sæti 79 stig
Hremmsa frá Hrafnagili , brún
F: Þokki frá Kýrholti
M: Gná frá Árgerði
Ræktendur/eigendur
Jón Elvar og Berglind Hrafnagili
2. sæti 76.4 stig
Alvara frá Hrafnagili, rauðjörp
F: Alvar frá Syðri-Gegnishólum
M: Elding frá Hrafnagili
Jón Elvar og Berglind Hrafnagili
3.sæti 76.4 stig
Marra frá Hólakoti, jarpstjörnótt
F: Moli frá Skriðu
M: Mánadís frá Nýjabæ
Ræktandi/eigandi
Ester Anna Hólakoti
Hestar
1. sæti 76.4 stig
Hreinn frá Litla-Dal, brúnn
F: Þokki frá Kýrholti
M: Rebekka frá Litla-Dal
Ræktendur/eigendur
Jónas og Kristín Litla-Dal
2. sæti 75.6 stig
Póstur frá Litla-Dal, brúnn
F: Kappi frá Kommu
M: Kolka frá Litla-Dal
Ræktendur Jónas og Kristín Litla-Dal
Eigendur Jónas og Kristín Litla-Dal og Vilberg í Kommu
3. sæti 74.6 stig
Hringur frá Hrafnagili, rauðstjörnóttur
F: Kjarni frá Þjóðólfshaga 2
M: Sara frá Víðinesi 2
Ræktendur/eigendur
Jón Elvar og Berglind Hrafnagili
Kosið glæsilegasta folaldið að mati áhorfenda
Ungfolar fæddir 2008
1. sæti 71.2 stig
Bruni frá Akureyri, ljósrauður/glófextur
F:Hvessir frá Ásbrú
M: Elding frá Blönduósi
Ræktandi/eigandi
Páll Hjálmarsson
2. sæti 65.2 stig
Sjóður frá Selfossi, brúntvístjörnóttur
F: Flipi frá Litlu-Sandvík
M: NN frá Miðhjáleigu
Ræktandi Óli Pétur
Eigendur Jón Elvar og Berglind Hrafnagili
3. sæti 63.4 stig
Mósi frá Hrafnagili, móálóttur
F: Rökkvi frá Hárlaugsstöðum
M: Perla frá Hrafnagili
Ræktendur/eigendur
Jón Elvar og Berglind Hrafnagili
Ungfolar fæddir 2007
1. sæti 74.6 stig
Dalur frá Hólakoti, rauðjarpskjóttur
F: Randver frá Sólheimum
M: Stilling frá Sölvholti
Ræktandi Ester Anna Hólakoti
Eigandi Auðbjörn Hólakoti
2. sæti 73.8 stig
Blær frá Hrafnagili, rauðglófextur
F: Forseti frá Vorsabæ
M: Sara frá Víðinesi 2
Ræktendur/eigendur
Jón Elvar og Berglind Hrafnagili
Stjórnin
Auðbjörn Kristinsson Hólakoti
Ester Anna Eiríksdóttir Hólakoti
Valur Ásmundsson Hólshúsum
Ævar Hreinsson Fellshlíð
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni