Úrslit frá fyrsta vetrarmóti Dreyra
Fyrsta mót í vetrarleikum Hestamannafélagsins Dreyra fóru fram síðustu helgi., 15 . febrúar.
Keppt var í fjórgangi. Sigurvegarinn í 1. flokki var Björvins Sigursteinsson á Klöpp frá Skjólbrekku. Klöpp er undan Kletti frá Hvammi. Annar varð Benedikt Kristjánsson á Rán frá Ytra Hólmi. Rán er undan Íslandsmeistaranum í fimmgangi Al frá Lundum. Þriðji í 1. flokki varð Guðbjartur Stefánsson á Kóngi frá Skipanesi undan Smára frá Skagaströnd.
Röð í úrslitum var sem hér segir:
Meira vanir:
1. sæti Björgvin Steinsson á Klöpp frá Skjólbrekku
2. sæti Benedikt Þór Kristjánsson á Rán frá Ytra-Hólmi
3. sæti Guðbjartur Þór Stefánsson á Baron frá Skipanesi
4.sæti Ulrika Ramutd á Dáð frá Akranesi
5.sæti Ólafur Guðmundsson á Faldi frá Hellulandi
6.sæti Einar Gunnarsson á Védísi frá Valhöll
Minna vanir:
1.sæti Belinda Ottósdóttir á Hlyn frá Einhamri
2. sæti Sigurður Ólafsson á Sesar frá Beitistöðum
3. sæti Brynjólfur Sæmundsson á Rauðunótt frá Kanastöðum
4. sæti Stina Laatch á Austra frá Syðra-Skörðugili
5. sæti Sæmundur Víglundsson á Fúsa frá Flesjustöðum
Unglingar:
1. sæti Gyða Helgadóttir á Bessý frá Heiði
2. sæti Rúna Rodmundsdóttir og Þrymur frá Beitistöðum.
3. sæti María Kristina Fagralón og Káinn frá Stærri-Bæ.
Börnin voru tvö þær Aníta B. Björgvinsdóttir og Birgitta Ósk Káradóttir og stóðu þær sig báðar með stakri prýði.
A landsliðshópur Íslands kynntur í dag
Agnar Snorri ráðinn til norska landsliðsins