Úrslit frá Ísmóti Riddara Norðursins

  • 11. febrúar 2013
  • Fréttir
Úrslit frá Ísmóti Riddara Norðursins

“Þá er Opnu Ísmóti Riddara Norðursins 2013 lokið. Mótið heppnaðist mjög vel. Veðrið var alveg dásamlegt, lyngt og hlýtt. Hláka var nóttina fyrir mót, svo ísinn var svolítið blautur, en okkur tókst að gera mjög góða braut á rennisléttum speglandi ísnum. Yfir 70 skráningar voru á mótinu og þökkum við mótsgestum fyrir þáttökuna. 

Ayatollah vill koma sérstökum þökkum til allra Riddara og Velunnara sem stóðu að því að gera mótið eins glæsilegt og það var. 

Næsti stórviðburður Riddara Norðursins er Áskorendamót sem fer fram 23.mars.

 
Úrslit Opna Ísmóts Riddaranna eru svohljóðandi:
Tölt 17 ára og yngri

1. Viktoría Eik Elvarsdóttir og Garri frá Hóli – 5,0
2. Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Trú frá Syðra Skörðugili – 4,33
3. Hólmar Björn Birgisson og Tangó frá Reykjum – 2,67
4. Hólmfríður Sylvía Björnsdóttir og Fjóla frá Fagranesi – 1,67

Tölt áhugamenn og konur

1. Elísabet Ýrr Steinarsdóttir og Kolvakur frá Syðri Hofdölum – 6,20
2. Laufey Rún Sveinsdóttir og Ótti frá Ólafsfirði – 5,8 
3. Pétur Grétarsson og Sóldís frá Sauðárkróki – 5,7
4. Óli Pétursson og Rán frá Skefilsstöðum – 5,5
5. Bjarki Þ Gunnarsson og Aðmíráll frá Syðra Garðshorni – 5,0

Tölt vanir

1. Líney María Hjálmarsdóttir og Sprunga frá Bringu – 6,7
2-3. Elvar Einarsson og Gaukur frá Kirkjubæ – 6,5
2-3 Pernille Möller og Sörli frá Hárlaugsstöðum – 6,5
4. Jessi Hujibers og Daníel frá Vatnsleysu – 6,3
5. Guðmundur Þ. Elíasson og Frigg frá Laugarmýri – 6,0

B-flokkur

1. Sina Scholz og Hængur frá Jarðbrú – 8,47
2. Þórarinn Eymundsson og Taktur frá Varmalæk – 8, 40
3. Skapti Steinbjörnsson og Þokki frá Brennigerði – 8,27
4. Björn F. Jónsson og Spes frá Vatnsleysu – 8,23
5. Hannes B. Sigurgeirsson Rá frá Naustanesi – 8,2

A-flokkur

1. Hörður Óli Sæmundarson og Hreinn frá Vatnsleysu – 8,60
2. Þórarinn Eymundsson og Rispa frá Saurbæ – 8,56
3. Skapti Steinbjörnsson og Grágás frá Hafsteinsstöðum – 8,48
4. Ingimar Ingimarsson og Vafi frá Ytra Skörðugili – 8,32
5. Sæmundur Sæmundsson og Þyrill frá Djúpadal – 7.72

Glæsilegasta par mótsins var valið Sina Scholz og Hængur frá Jarðbrú. 
Hlutu þau í verðlaun bílaleigubíl frá Avis í 3 daga með ótakmörkuðum akstri. 

Óskum við öllum þessum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangur sinn, og þökkum þeim fyrir þátttökuna,“ segir í tilkyningu frá Riddurum Norðursins 

www.riddarar.123.is

 
 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link