Úrslit frá Ungfolasýningu Hrossaræktarfélags Austur-Landeyja
Almyrkvi frá Skíðbakka 1A og eigendur
Ungfolasýning samtakanna var haldin þann 30 Apríl síðastliðinn. Þáttaka var góð og voru skráðir til leiks 20 folar í 2 flokkum.
Vel þótti takast til með sýninguna og sjálfsagt sjaldan eða aldrei hefur komið fram annar eins fjöldi af frambærilegum folum eins og nú.
Af þeim 10 folum er kepptu í 2. vetra flokki varð Almyrkvi frá Skíðbakka 1A í efsta sæti.
Almyrkvi er undan Kolgrími Frá Breiðholti og hinni öflugu kynbótahryssu Tinnu Frá Kimbastöðum. Almyrkvi þótti einkar háfættur, fínlegur og hreyfingafallegur og var vel að sigrinum kominn . Ræktendur og eigendur Biggi Ægir og Birgitta Bjarnadóttir .
Í næstu sætum komu þeir
Háfeti frá Koltursey
F. Apollo f. Haukholtum
M. Hnoss frá Koltursey
Ræktendur og eigendur fjölskyldan að Koltursey.
Áki frá Skíðbakka I
F. Viðar frá Skör
M. Ýr frá Skíðbakka I
Ræktandi og eigandi Rútur Pálsson .
Í flokki 3. Vetra hesta reyndist hlutskarpastur Neisti frá Ytri-Skógum .
Neisti þótti afskaplega jafnvaxinn og hlutfallaréttur með gríðar stórar og miklar hreyfingar . Faðir Neista er Konsert frá Hofi og móðir Gefjun frá Ytri-Skógum. Ræktandi er Ingimundur Vilhjálmsson en Eigendur Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Hlynur Guðmundsson Svanavatni.
Í næstu sætum urðu þeir
Náttfari frá Strandarhöfði
F. Loki frá Selfossi
M. Dimma frá Strandarhöfði
Ræktendur og eigendur Guðmundur Már og
Auður Möller .
Kjarval frá Skíðbakka III
F. Kiljan frá Steinnesi
M. Hetja frá Efsta-Dal
Ræktendur og eigendur Jón Svavar og Erlendur Árnason .
Stjórnin vill óska öllum ræktendum og eigendum þessara fola innilega til hamingju.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH