Úrslit í fimmgangi Suðurlandsdeildar

  • 4. mars 2020
  • Fréttir

Efstu knapar og hestar í úrslitum atvinnumanna, Valdís Björk og Fjóla frá Eskiholti lengst til hægri

Glæsilegar sýningar voru í þriðju keppni Suðurlandsdeildarinnar 2020 þar sem keppt var í fimmgangi í Rangárhöllinni á Hellu. Það var lið Byko sem var stigahæsta liðið og er nú í góðri stöðu fyrir lokakeppnina þar sem keppt verður í tölti og skeiði en nóg er þó eftir af stigum í pottinum og allt getur gerst.

Í úrslitum atvinnumanna var það Valdís Björk Guðmundsdóttir á Fjólu frá Eskiholti úr liði Fákasels sem stóð uppi sem sigurvegari eftir góða sýningu og geggjaða skeiðspretti sem hún hlaut frábæra einkunn fyrir. Í úrslitum áhugamanna var það Dagbjört Hjaltadóttir á Heklu frá Laugarbökkum úr liði Heklu hnakka sem sigraði eftir frábæra sýningu.

Úrslit atvinnumanna

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Valdís Björk Guðmundsdóttir / Fjóla frá Eskiholti II 7,26
2-3 Hinrik Bragason / Byr frá Borgarnesi 7,12
2-3 Herdís Rútsdóttir / Klassík frá Skíðbakka I 7,12
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Brynjar frá Bakkakoti 7,05
5 Sara Sigurbjörnsdóttir / Flóki frá Oddhóli 6,90
6 Elin Holst / Spurning frá Syðri-Gegnishólum 6,62

 

Úrslit áhugamanna

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Dagbjört Hjaltadóttir / Hekla frá Laugarbökkum 6,55
2 Karen Konráðsdóttir / Lind frá Hárlaugsstöðum 2 6,38
3 Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg / Árdís frá Litlalandi 6,29
4 Svanhildur Hall / Þeyr frá Holtsmúla 1 6,19
5 Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir / Álfrún frá Bakkakoti 5,98
6 Sævar Örn Sigurvinsson / Esja frá Skíðbakka I 5,95
7 Katrín Sigurðardóttir / Haukur frá Skeiðvöllum 5,60

 

Sæti Lið Stig
1. Byko 219,5
2. Húsasmiðjan 190
3. Krappi 175,5
4. Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð 175,5
5. Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær 160
6. Heklu hnakkar 153
7. Heimahagi 148,5
8. Tøltrider 140,5
9. Fet / Kvistir 139,5
10. Equsana 131
11. Fákasel 110
12. Ásmúli 57

Blue Hors og Stormrider voru með vörukynningu í anddyri Rangárhallarinnar og gáfu glæsileg verðlaun í úrslitasætin og þökkum við kærlega fyrir það.

Við sjáumst í Rangárhöllinni þann 17. mars n.k. þar sem keppt verður í tölti og skeiði og er það jafnframt lokakeppni tímabilsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link