Úrslit ljósmyndakeppni Eiðfaxa

  • 7. desember 2012
  • Fréttir
Úrslit ljósmyndakeppni Eiðfaxa

Þáttakan var mjög góð í ljósmyndasamkeppninni þetta árið. Yfir 300 myndir bárust í keppnina að þessu sinni og valið í verðlaunasætin mjög vandasamt fyrir dómnefnd.  

Keppendur fundu margvíslega fleti á hestaljósmyndun enda var einstaklega gaman að fara í gegn um innsendar myndir, ekki má gleyma að þetta eru verðmætar minnigar. Mörgum skemmtilegum myndum eru gerð góð skil hér í blaðinu og þakkar Eiðfaxi innilega fyrir þáttökuna
 
1.Sæti hlaut  Árný Ilse Árnadóttir, 28 ára áhugaljósmyndari  búsett á Selfossi fyrir þessa fallegu mynd. Skemmtilegt sjónarhorn, ró og falleg nánd einkenna myndina.  Á henni er Elín Magnúsdóttir frænka hennar með merinni sinni Hvítá frá Oddgeirshólum.  Hvítá var svo á leið átti svo stefnumót næsta dag við myndarlegan stóðhest.
 
2.Sæti hlaut Sunna Gautadóttir  fyrir myndina sína “Vinarþel”.  Kvöldsólin var falleg þetta kvöld þegar Sunna og litla systir hennar Jóhanna Lilja löbbuðu út á tún til að heilsa upp á hestana þar. “ Sambandið sem myndast getur milli manns og hests er eitt það fallegasta sem til er,” segir Sunna. Það augnablik reyndi hún að fanga og skapa sérstaka stemningu með fallegum leik að ljósi og vel úthugsaðri silúettu.
 
3.Sæti hlaut Inga Stumpf.  Hún fangaði kraft og leik ungra stóðhesta í sinni eigu, Blómálf (rauðskjóttann) og Garðálf (brúnskjóttann) frá Rifkelstöðum.  Þeir eru báðir undan Hróðsyninum Ljósálfi frá Fellskoti.
 
Keppninni verða svo gerð nánari skil í Jólablaði Eiðfaxa
 
 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link