Úrslit Nýárstölts Léttis
Þann 28. janúar s.l. var haldið Nýárstölt Léttis og Háhólshesta í Top Reiterhöllinni á Akureyri…
Keppt var í tveimur flokkum, minna vanir og meira varnir. Ágústa Baldvinsdóttir sigraði í flokki minna vanra á Röst frá Efri-Rauðalæk með einkunnina 6,06. Í öðru sæti var Tryggvi Höskuldsson á Flugari frá Króksstöðum með einkunnina 5,61 og í þriðja sæti var Hildigunnur Sigurðardóttir á Runna frá Hrafnkelsstöðum 1 með einkunnina 5,33.
Í flokki meira vanra sigraði Þorbjörn Hreinn Matthíasson á Týr frá Litla-Dal með einkunnina 6,89. Í öðru sæti var Baldvin Ari Guðlaugsson á Logari frá Möðrufelli með einkunnina 6.44 og í þriðja sæti varð Birgir Árnason á Sóldísi frá Akureyri og Pétur Vopni Sigurðsson á Silfurtoppi frá Oddgeirshólum 4 í því 4, en þeir voru báðir með einkunnina 6.17 í 5. sæti varð Anna Kristín Friðriksdóttir á Glað frá Grund með einkunnina 6,06
Birgir og Pétur voru jafnir að stigum og varpað var hlutkesti til að fá sætaröðina.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH