Úrslitahross á LM2012 á skilorði

  • 15. ágúst 2012
  • Fréttir
Tungubogi, of löng mél og hvíldarlaust átak á tauma eru aðal skaðvaldarnir: Atriði sem dómarar sjá ekki.

Á LM2011 á Vindheimamelum í fyrra var í fyrsta sinn skoðað fyrir áverkum á tannlausa bilinu í munni keppnishesta í gæðingakeppni. Um er að ræða heilbrigðisskoðunina „Klár í keppni“ sem framkvæmd er undir eftirliti Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma. Kynbótahross voru ekki tekin inn í þá skoðun fyrr en á LM2012 í Reykjavík.

Áverkar á tannlausa bilinu
Skoðun keppnishrossa hefur tíðkast á heimsmeistaramótum lengi. Ekki hefur þó verið skoðað svæðið á tannlausa bilinu, þar sem líklegt er að átak frá stangamélum, einkum með tunguboga, komi niður. Stangareiðmenn vísuðu í þetta og töldu niðurstöður sanna að stangamél væru hestvænni en hringamél.

Á LM2011 kom í ljós að mörg hross voru með áverka á tannlausa bilinu, sem einkum eru raktir eru til stangaméla með tunguboga, bæði einjárnunga og liðskiptra méla. Fáeinum hrossum var vísað frá keppni með þriðja stigs áverka, en allnokkur með annars stigs áverka fengu að halda áfram keppni á skilorði gegnt því að knapar notuðu mél sem dýralæknir samþykkti.

Vakin skal athygli á því að venjuleg stangamél geta einnig valdið sama skaða, til dæmis ef mélin er of löng og ef hesturinn dregur tunguna upp og eða setur hana yfir mélin.

Stefndi í uppnám á LM2012
Þrátt fyrir að knapar og eigendur keppnishrossa hefðu verið upplýstir um skaðann og skaðvaldinn var ástand hrossanna ekki betra á LM2012. Nokkur hross í A úrslitum í tölti og A flokki gæðinga voru á skilorði og sum með allslæma áverka í munni. Samkvæmt heimildum Hestablaðsins var það sameiginleg niðurstaða dýralæknis mótsins og mótsstjóra að láta kyrrt liggja. Ekki þótti stætt á að vísa hrossunum úr keppni vegna þess hve mörg þau voru og þar með hleypa mótinu í uppnám.

Knapar fá plúsa á meiddum hestum
Á Íslandsmóti fullorðinna í hestaíþróttum gengu keppnishrossin undir skoðunina Klár í keppni. Á mótinu fengu knapar plúsa fyrir reiðmennsku þótt upplýsingar lægju fyrir hjá dýralækni um að hestarnir væru meiddir í munni. Upplýsingar sem dómarar höfðu ekki og sáu ekki þegar hestunum var riðið í keppninni.

Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir, segir það hafa undrað sig mest hve mörg hross sem riðið er með stöngum með tunguboga, og séu með greinilega áverka á kjálkabeini,  séu stillt og falleg í höfuðburði og geti verið líkleg til árangurs í keppni.

Rætt verður ítarlega við Sigríði um málið í næsta tölublaði Hestablaðsins, en hún vinnur nú að samantekt á þeim gögnum sem safnast hafa á LM2012 og Íslandsmóti 2012.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link