Úrtaka á Allra sterkustu

  • 16. mars 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Þórarinn Ragnarsson og Þytur frá Efsta-Dal II sigruðu Þá allra sterkustu í fyrra.

Knapar sem telja sig eiga erindi á töltmótið eru hvattir til að skrá sig.

Ákveðið  hefur verið að halda úrtöku vegna töltkeppni „Þeirra allra sterkustu“ um nokkur laus pláss.

Úrtakan verður sunnudaginn 22.mars kl. 16.00 í Sprettshöllinni. Skráningargjald er kr. 5.000 Knapar með hesta sem telja sig eiga erindi á „Allra sterkustu“  sem fer fram 4. apríl í Sprettshöllinni eru hvattir til að skrá sig í úrtökuna. Skráning sendist [email protected] ásamt greiðslukvittun fyrir skráningu.

Greiðist inn á:
Landssamband hestamannafélaga kt. 7101693579, bnr. 513-26-1448.

Þetta segir tilkynning frá Landsliðsnefnd LH.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link