Úrtaka á Dalvík
Opið Tölt- og Skeiðmót verður haldið á keppnisvelli Hrings við Hringsholt laugardaginn 13. júní samkvæmt tilkynningu frá mótanefnd Hrings.
Keppt verður í:
- Tölti: T1 opinn flokkur,T1 ungmenni, T1 unglingar
- Skeið: 100m, 150m og 250m, rafræn tímataka.
Opið Gæðingamót Hrings 2015 – Gildir sem úrtaka fyrir Fjórðungsmót 2015, þann 13. júní.
- A Flokkur: Fullorðnir og ungmenni
- B flokkur: Fullorðnir og ungmenni
- Gæðingakeppni: Unglingar og börn
Skráningar fara fram í gegnum tengilinn „Skráning í mót“ á heimasíðu Hrings, hringurdalvik.net. Þar skal merkja við öll stjörnumerkt atriði.
Skráningu lýkur miðvikudagskvöldið 10. júní kl 20.00. Skráningargjöld skulu greidd inn á reikning félagsins fyrir föstudag 12. júní kl 19:0. Skráningargjöld: kr 2500 fyrir fyrstu skráningu kr 2000 fyrir næstu skráningar pr.knapa. Kennitala félagsins: kt. 540890-1029 Reiknisnúmer: 1177-26-175 – skýring. Mótið hefst klukkan 10.30 á skeiði. Úrslit riðin í öllum flokkum ef næst í tilsettan fjölda.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH