Úrtaka fyrir KS deildina

  • 8. september 2015
  • Fréttir
Keppt verður í fjórgangi og fimmgangi

Úrtaka fyrir KS-Deildina fer fram í Svaðastaðahöllinni 15. janúar 2016. Auglýst er eftir einu liði til þáttöku í deildinni. Úrtakan fer þannig fram að keppt verður í fjórgang og fimmgang 

Í úrtöku skulu mæta 2 keppendur úr hverju liði og skulu báðir ríða hvora grein. Samanlagður árangur gildir til úrslita. Ekki þarf að vera búið að fullmanna liðið þegar úrtakan fer fram og hafa sigurvegararnir tíma til 31. janúar til að tilkynna endanlegt lið. Keppniskvöld KS-Deildarinnar
15. janúar – Úrtaka
17. febrúar – Fjórgangur
2. mars – Fimmgangur
16. mars – Tölt
30. mars – Gæðingafimi
6. apríl – Slaktaumatölt og Skeið

Allar nánari upplýsingar veitir Eyþór í síma 848-2725

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link