Úrtaka fyrir Landsmót hjá Sleipni, Ljúfi og Háfeta
Þann 3. – 6. júní verður úrtaka fyrir Landsmót fyrir hestamannafélögin Sleipni, Ljúf og Háfeta. Riðnar verða tvær umferðir, fyrri föstudaginn 3. júní og seinni laugardaginn 4. júní.
Úrslit í gæðingakeppni Sleipnis fara fram sunnudaginn 5. júní. Samkvæmt nýjum reglum LH er keppendum leyfilegt að koma með tvo hesta í úrtöku. Frekari upplýsingar um skráningu verða birtar síðar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gæðingamótsnefnd Sleipni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH