Úrvalsgripir á kynbótasýningu – viðtal og myndir
Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur,dæmdi á nýafstöðnu vorsýningunni á Selfossi. Hann segir sýninguna í heild hafa gengið prýðilega og að hin nýja aðstaða á Brávöllum hafi verið til fyrirmyndar. „Kynbótasýningin var að öðru leiti nokkuð hefðbundin bæði mjög góð hross og önnur nokkuð síðri eins og gengur en að sjálfsögðu viljum við fá sem mest af hrossum til dóms. Þannig verður myndin af framgangi ræktunarinnar sem réttust og raunhæft mat fæst á gæði hinna einstöku stóðhesta sem verið er að nota,“ segir Guðlaugur.
Þau sex hross sem landsmótslágmörkum náðu standa augljóslega upp úr í hans huga. „Lágmörkin eru ströng og þeim ná aðeins úrvalsgripir. Þeir gripir komast næst ræktunartakmarkinu sem við höfum sett okkur hvert á sinn hátt. Þarna voru frábærar ungar vonarstjörnur en einnig eldri flugrúmir garpar.“
Guðlaugur óskar Sleipnismönnum og starfsfólki Búnaðarsambands Suðurlands til hamingju með hvernig til tókst um helgina.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Sigurður Sigmundsson og Óðinn Örn Jóhannsson tóku á yfirlitssýningunni í gær.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH