Úrvalssýning kynbótahrossa

  • 29. júní 2018
  • Fréttir
Á þessa sýningu mega koma hross með 9.5 – 10 fyrir tölt, hægt tölt, brokk, skeið, stökk, hægt stökk, fet og fegurð í reið.

Á laugardeginum á Landsmóti verður úrvalssýning kynbótahrossa þar sem hugmyndin er að virða fyrir sér bestu hross landsins fyrir ákveðna eiginleika og kynna fjölhæfni og fegurð hestsins og þá miklu vídd sem býr í ganghæfni íslenska hestsins. Þessi sýning verður frá 15:30 til 16:15 á laugardeginum 7. júní. Á þessa sýningu mega koma hross með 9.5 – 10 fyrir tölt, hægt tölt, brokk, skeið, stökk, hægt stökk, fet og fegurð í reið. Þessi sýning er opin þeim hrossum sem búa yfir þessum einkunnum og voru sýnd í vor, óháð því hvort þau vinna sér þátttökurétt á Landsmóti sem einstaklingar eða ekki. Eigendur hrossa sem ætlunin er að sýna á þessum dagskrárlið eru beðnir um að láta vita um þátttöku á netfanginu [email protected] eða í síma 892-9690.

Þorvaldur Kristjánsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link