Úrvalstölthryssa seld úr landi
Ein af bestu tölthryssum landsins hefur nú verið seld til Þýskalands.
Hryssan sem um ræðir er Þristardóttirin Lokkadís frá Sólheimum í Skagafirði. Móðir Lokkadísar er Fáfnirsdóttirin Mánadís frá Tunguhálsi.
Lokkadís hlaut 9,5 fyrir tölt í kynbótadómi á Héraðssýningu á Vesturlandi árið 2011 sýnd af Ævari Erni Guðjónssyni.
Eftir það tók hún þátt í nokkrum keppnum en bestum árangri í unglingaflokkskeppni Harðar árið 2012, en það sama ár tók hún þátt á unglingaflokki á LM2012 þá setin af Hlyn Óla Haraldssyni.
Seljandi hennar eru Ganghestar ehf en annar ræktandi hennar Haraldur Páll Bjarkarsson átti hryssuna lengst af.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH