Útflutningur hrossa á uppleið aftur

  • 20. ágúst 2012
  • Fréttir

Myndin er tekin í 250 metra skeiðkeppni á HM2009 í Sviss.

Þýskumælandi þjóðirnar sækja í sig veðrið. Þýskaland er langstærsti kaupandinn og Sviss er númer tvö.

Þann tuttugugasta ágúst höfðu verið flutt út 622 hross, eða um eitt hundrað fleiri en á sama tíma í fyrra. Þetta eru vissulega góð tíðindi, þótt ennþá sé talsvert í land með að útflutningurinn komist á sama ról og þegar best lét.

Þýskumælandi þjóðirnar eru í mestri sókn sem kaupendur en sala til Norðurlandanna dregst saman. Til Þýskalands hafa verið flutt út 252 hross á árinu en voru 192 á sama tíma í fyrra. Sviss er orðið annað stærsta útflutningslandið. Þangað hafa nú verið seld 94 hross, en voru 83 á sama tíma í fyrra.

Upplýsingar þessar eru úr WorldFeng.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link