Útskriftarsýning reiðkennaraefna á Hólum

  • 17. maí 2022
  • Fréttir
Sýningin fer fram á laugardaginn

Háskólinn á Hólum býður upp á BS nám í reiðmennsku og reiðkennslu. Námið er fjölbreytt og meginmarkmið þess er að veita nemendum fræðilega og hagnýta og verklega þekkingu í tamningum, þjálfun, reiðmennsku og reiðkennslu.

Nú er komið að útskriftarsýningu reiðkennaraefna Háskólans á Hólum en hún verður haldin laugardaginn, 21. mars kl. 13:00 – 15:00 á aðalreiðvelli skólans að Hólum í Hjaltadal. Á sama tíma er WR Hólamót Skagfirðings og UMSS.

Einnig er vert að benda á það að opið er fyrir umsóknir til náms við deildina til 5. júní næstkomandi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link