Væntingastjórnun í hestamennsku á ekki að vera til
Frá verðlaunaafhendingu fyrir 4 vetra stóðhesta á Landssýningu í sumar. Frá vinstri: Jón Björnsson, Bryndís Mjöll og Guðmundur, Sigurveig Stefánsdóttir og Jón Árnason á Skipaskaga og Daníel Jónsson.
Hæst dæmdi 4 vetra stóðhestur þessa árs er Róbert frá Kirkjufelli, sonur Skagans frá Skipaskaga og Gjólu frá Skipaskaga. Þetta er markverður árangur hjá ræktendunum sem kenna sig við Kirkjufell við Grundarfjörð, þau Bryndísi Mjöll Gunnarsdóttur og Guðmund Ólason, enda er ræktunin hvoru tveggja smá í sniðum og ung að árum. Eiðfaxi tók því hús á þeim hjónum og fékk að vita ögn meira um þeirra hross og hrossarækt.
Guðmundur er fæddur og uppalinn vestur í Grundarfirði og stundaði þar hestamennsku frá unga aldri með úrvalsfólki og eftirminnilegum persónum. Þegar fullorðinsárin runnu upp fékk hestamennskan að víkja fyrir öðrum og „mikilvægari“ hlutum og það var ekki fyrr en í kringum 2005 sem þau Bryndís fóru að huga að því að taka upp þráðinn. „Mér fannst það svo heillandi hugmynd að við myndum fá okkur eitt eða tvö útreiðahross og láta það nægja en eins og margir þekkja þá getur hestabakterían verið mjög smitandi og fyrr en varði vorum við komin á kaf í ræktunarpælingar“ segir Bryndís.
„Við ákváðum snemma að leita í ræktunarstóð þeirra búa sem voru framarlega á því sviði“ segir Guðmundur. „Til dæmis festum við kaup á þremur systrum frá Auðsholtshjáleigu, dætrum Örar frá Auðsholtshjáleigu. Þetta eru þær Ösp, dóttir Gára frá Auðsholtshjáleigu, Öld sem er undan Orra frá Þúfu og Önn sem er dóttir Sveins Hervars frá Þúfu. Þeim til viðbótar festum við kaup á hryssunum Nótt frá Torfunesi en hún er undan Nagla frá Þúfu og Mánadís frá Torfunesi og Sigríði frá Feti sem er undan Orra frá Þúfu og Ísafold frá Sigríðarstöðum, en hana eigum við í dag ásamt vinum okkar Petru Björk Mogensen og Sveinbirni Sveinbjörnssyni. Einnig leituðum við í hrossaræktina á Skipaskaga og festum þar kaup á tveimur úrvals hryssum, þeim Rós frá Skipaskaga (móðursystur Skagans) og Sylgju frá Skipaskaga, auk þess að kaupa helminginn í Gjólu, móður Róberts.“ Í dag eru 10 fyrstu verðlauna hryssur í eigu hjónanna.

Sigríður frá Feti Ljósmynd: Jón Björnsson
„Allar hryssurnar sem við keyptum í upphafi voru ótamdar eða ósýndar utan ein sem var komin með fyrstu verðlaun en í dag hafa allar þessar hryssur náð þeim árangri þannig að við vorum bæði heppin hvað það varðar og nutum góðra ráða þeirra ræktenda sem við keyptum þær frá. Við höfum einnig leitað til þeirra eftir góðum ráðum í gegnum tíðina og myndað gott og traust vinasamband við þá alla.“
En hvert er ræktunarmarkmið þeirra hjóna? „Ræktunarmarkmiðið er hyldjúpt. Geðslagið er lykilatriði og forsenda alls annars. Sígandi lukka er best og ef geðslagið er heilt og hrossið vinnur með þér þá er bara tímaspursmál hvenær það nær að sýna sínar bestu hliðar. Ræktun tekur tíma en sá tími er líka skemmtilegastur, að fylgjast með tryppunum og spá í framtíð þeirra og leyfa sér að dreyma. Væntingastjórnun í hestamennsku er ekki til og hún á heldur ekkert að vera það. Okkar tími meðan við njótum væntinganna er oft á tíðum lengri en sá þegar við njótum reiðhestakosta eða afreka. Að komast yfir vonbrigði tekur síðan bara örstund, örlítinn þroska og þá er það afgreitt mál.“

Róbert frá Kirkjufelli á Landssýningu kynbótahrossa í sumar. Mynd: Louisa Hackl
Frábær árangur Róberts frá Kirkjufelli rís hæst eftir kynbótaárið en hann hlaut 8,45 í aðaleinkunn, aðeins fjögurra vetra gamall. Verða honum gerð betri skil í Árbók Eiðfaxa sem kemur út í desember. Auk þess fóru tvær aðrar hryssur úr ræktun Bryndísar og Guðmundar í fyrstu verðlaun í ár, þær Marta Lovísa frá Kirkjufelli (ae. 8,08) undan Spuna frá Vesturkoti og Ösp og Karítas frá Kirkjufelli (ae. 8,04) sem er undan Steðja frá Skipaskaga og Ösp.
Sem fyrr segir er ræktun þeirra hjóna kennd við Kirkjufell við Grundarfjörð, hvaðan Guðmundur er ættaður og áttu þau hjón síðar bú á jörðinni Kirkjufell. „Þó hrossin okkar séu kennd við Kirkjufell, þá erum við með þau hjá góðum vini okkar, Gesti Þórðarsyni á Kálfhóli á Skeiðum. Við vinnum bæði erlendis lungann úr árinu og komum aðeins heim á sumrin og um jólin svo það er mikilvægt að vera með úrvalsfólk hér til að annast hrossin fyrir okkur og hafa einhvern til að tala við um hestamennskuna. Við erum mjög heppin með að eiga Gest og fleiri góða vini að í þeim efnum.“
En hvaða stóðhestar voru notaðir í sumar og hvað er spennandi úr Kirkjufellsræktuninni fyrir komandi vetur? „Við fórum með þrjár hryssur undir Róbert í sumar. Auk þess fórum við með eina hryssu undir Sjóð frá Kirkjubæ, eina unudir Ljósvaka frá Valstrýtu og eina undir Eldjárn frá Skipaskaga. Móðir Róberts fór svo undir Skagann aftur í sumar, Jón og Sigurveig eiga það fyl og engin ástæða að breyta uppskrift sem augljóslega virkar. Við eigum svo ungan og efnilegan fola undan henni og Veigari frá Skipaskaga, það verður spennandi. Hvað næsta vetur varðar þá voru tvær ungar hryssur frá okkur sem var byrjað á í sumar og okkur líst vel á, önnur undan Ómi frá Kvistum og hin undan Skaganum frá Skipaskaga, en hún er alsystir stóðhestsins Gleipnis frá Skipaskaga. Að auki eru tvær aðrar hryssur að koma inn, önnur undan Sveini Hervari og hin undan Vála frá Bæ en sá er undan Þrift frá Hólum og Arði frá Brautarholti. Erum einnig með tvo fola á fjórða vetur undan Vála sem miklar væntingar eru bundnar við! Síðan mun Róbert vera áfram í sinni góðu vist uppi á Skipaskaga og vonandi eflast og þroskast enn frekar.“
Eiðfaxi þakkar þeim hjónum kærlega fyrir spjallið og óskar þeim góðs gengis í hrossaræktinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH