Valdimar sigraði í fljúgandi skeiði
Vænir vekringar flugu úr stórhríð og í gegnum Ölfushöllina. Keppni í fljúgandi skeiði var æsispennandi. Voru það hinir ungu skeiðknapar Valdimar Bergstað á Prins frá Efri-Rauðalæk og Ragnar Tómasson á Isabel frá Forsæti sem fóru höllina endilanga á nákvæmlega sama tíma 5,68 sekúndum. En þar sem Isabel lá ekki hjá Ragnari í öðru spretti fóru Valdimar og Prins fóru með sigur af hólmi. Þriji var svo Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal sem flugu gegnum höllina á 5,69 sekúndum.
„Fljúgandi skeið“ skjöldin hlaut lið Árbakka/Norður-Gatna.
Meðfylgjandi eru tímar kvöldsins.
Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Bergþór frá Feti 6,12 – 5,90
Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Korði frá Kanastöðum 5,78 – 5,72
Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Vera frá Þóroddsstöðum 6,06 – 5,94
Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Flosi frá Keldudal 5,71 – 5,69
Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Gjósta frá Prestsbakka 6,19 – 0,00
Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Gríður frá Kirkjubæ 6,00 – 5,92
Artemisia Bertus Hrímnir Dynfari frá Steinnesi 6,21 – 6,10
Viðar Ingólfsson Hrímnir Snarpur frá Nýjabæ 6,08 – 0,00
Ragnar Tómasson Árbakki / Norður-Götur Isabel frá Forsæti 0,00 – 5,63
Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Gjálp frá Ytra-Dalsgerði 5,81 – 6,19
Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Prins frá Efri-Rauðalæk 5,68 – 5,63
Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Lilja frá Dalbæ 5,93 – 5,95
Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Zelda frá Sörlatungu 0,00 – 6,43
Haukur Baldvinsson Auðsholtshjáleiga Everest frá Borgarnesi 6,12 – 6,24
Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Birtingur frá Selá 5,81 – 5,80
Elvar Þormarsson Spónn.is Gjafar frá Þingeyrum 5,78 – 5,75
Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Funi frá Hofi 5,93 – 5,95
Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Ársól frá 6,21 – 5,97
Daníel Ingi Smárason Hrímnir Hörður frá Reykjavík 5,79 – 0.,00
Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Felling frá Hákoti 6,05 – 5,93
Sigurður Sigurðarson Lýsi Drift frá Hafsteinsstöðum 5,82 – 5,74
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH