Vallarmót Trausta
Árlegt Vallamót Hestamannafélagsins Trausta verður haldið laugardaginn 20.ágúst n.k. á Laugarvatnsvöllum. Líkt og í fyrra verður keppt í smalakeppni og verður smalakeppninni skipt í smala 1, þ.e. 14 ára og yngri og smali 2, þ.e. 15 ára og eldri
Mótið hefst kl. 10:00 og er dagskrá sem hér segir:
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Pollaflokkur
Firmakeppni
Smali 1
Smali 2
100m skeið
Verðlaunaafhending í barna og unglingaflokki fer fram strax að lokinni keppni í flokkunum
Í barnaflokki skal ríða fet, stökk og tölt eða brokk.
Sé áhugi fyrir hendi á verður keppt í kappreiðum, þeas skeiði og eða stökki.
Skráningar í barna- og unglinga þurfa að berast á netfangið [email protected] í síðasta lagi miðvikudaginn 17. ágúst.
Í firmakeppni, kappreiðum og smala 1 og 2 er skráning á staðnum.
Vallarmótsnefnd Trausta
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH