Vann til verðlauna í reiðmennsku með 37 ára millibili
Þrír efstu í Reynisbikarnum. F.v. Björk Guðbjörnsdóttir, Aron Óskarsson og Grímur Guðmundsson
Í gær, sunnudaginn 30 maí fór útskrift Reiðmanna sem sótt hafa námið okkar 2019-2021 fram að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Dagurinn heppnaðist ljómandi vel þrátt fyrir slagveður sem gekk yfir. Að þessu sinni útskrifuðust hópar sem stundað hafa nám í Reiðmanninum í Mosfellsbæ, á Hellu og í Kópavogi.
Sjö knapar tóku þátt í Reynisbikarnum, en þátttökurétt áttu efstu knapar úr útskriftarhópunum okkar og efstu þrír riðu til úrslita.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
- Grímur Guðmundsson Reiðmaðurinn á Hellu
Íva frá Ásatúni
- Aron Óskarsson Reiðmaðurinn í Spretti
Kristín frá Firði
- Björk Guðbjörnsdóttir Reiðmaðurinn á Hellu
Styrkur frá Kjarri
Að auki var keppt í tölti T5 og þar urðu úrslit eftirfarandi:
- Aron Óskarsson
Kristín frá Firði
- Björk Guðbjörnsdóttir
Álfasteinn frá Magnúsarskógum
- Grímur Guðmundsson
Íva frá Ásatúni
- Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir
Gyðja frá Krossanesi
- Anna Guðjónsdóttir
Íslandsblesi frá Kolsholti 2

Fimm efstu í töltkeppni
Grímur Guðmundsson sem hlaut Reynisbikarinn svaraði nokkrum spurningum:
- Þú hlaust Reynisbikarinn á útskriftarhátíð Reiðmannsins 2019-2021. Hvaða þýðingu hefur það og hvernig telur þú að námið í Reiðmanninum muni gagnast þér í framtíðinni?
„Mjög gott nám opnar inn á nýar brautir í þjálfunarferli, skilning á atferli og samvinnu við hestinn.“
- Hvaða ráð getur þú gefið þeim sem eru í náminu í dag eða hafa hug á að hefja nám í Reiðmanninum í haust?
„Hvet alla sem stunda hestamensku að fara í reiðmannin, til að bæta þjálfunarferli og opna fyrir betri samskipti og skilning við hestinn.
Þegar ég tók þá ákvörðun að fara í Reiðmannin áhvað ég að tæma hugann og fara í þetta nám með það að leiðarljósi að tileinka mér þær aðferðir sem kenndar eru. Tel ég að það megi þakka þann árangur sem ég náði ásamt hesti og frábærum kennurum. Takk fyrir mig.“
Til gamans má geta að ég tók Morgunblaðsskeifuna á Hólum 1984 þannig að þetta eru önnur verðlaunin sem ég hlýt úr bændaskóla með 37 ára millibili.
Nánari upplýsingar
Skráning í Reiðmanninn I veturinn 2021-2022 er opin til og með 15. júní. Námið verður í boði á fimm stöðum á landinu: Akranesi, Akureyri, Hvammstanga, Kópavogi og Selfossi, að því gefnu að næg þátttaka náist (12-14 reiðmenn). Skráning og nánari upplýsingar https://endurmenntun.lbhi.is/reidmadurinn/
Hinrik Þór Sigurðsson umsjónarmaður Reiðmannsins hjá Endurmenntun LbhÍ : 8435377
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH