„Varð að taka þetta út“
Eiðfaxa barst ábending um að spjallþráður um innflutning á notuðum járningatækjum hefði verið tekinn út af vefnum.
Í samtali við blaðamann Eiðfaxa segir Fjölnir Þorgeirsson hann vera á varðbergi fyrir hvað sagt sé á vefnum og í þessum spjallþræði hafi nafngreindur maður verið kallaður vitleysingur.
„Það er of langt gengið að kalla menn vitleysinga á vefnum og því varð ég að taka þetta út“ segir Fjölnir og bætir við að hann vilji hafa umræðuna á málefnalegum nótum.
Fjölnir hvetur menn jafnframt að nýta sér spjallvef sinn en aðgát skuli hafa í umræðunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH