Vega salt á hnífsegg

  • 26. júní 2012
  • Fréttir
Hrímir frá Ósi og Loki frá Selfossi með sömu einkunn í milliriðli í B flokki

Milliriðli klárhesta með tölti er lokið. Hrímnir frá Ósi, knapi Guðmundur Björgvinsson er efstur með 8,89 og jafn honum í öðru sæti með 8,89, en brotabrotum neðar, er Loki frá Selfossi, knapi Sigurður Sigurðarson. Það er nokkuð ljóst að þessir tveir hestar munu berjast um efsta sætið í A úrslitum, nema óhapp hendi þá. Þeir hafa allnokkra yfirburði yfir næstu hesta.

Krít frá Miðhjáleigu, sem hefði getað yljað þeim undir uggum var hátt stemmd í milliriðlinum, krosstökk í tvígang og knapinn Leó Geir Arnarson tók þá ákvörðun að ljúka ekki keppni, sem var það skynsamlegasta í stöðunni. Sýningin farin í vaskinn.

Klárhestarnir á LM2012 eru allgóðir í heildina, en ekki frábærir. Of mikið er um að hestar leiti upp úr beisli eða séu óþjálir í taumum á annan hátt. Ekkert hross í flokknum sameinar það að vera frábærlega þjált en jafnframt glæsilegt og hjólandi á gangi, nema þá helst Loki.

Möller frá Blesastöðum 1a var mjög vel sýndur af Helgu Unu Björnsdóttur, en skortir glæsileika á hægu til að skarta sem klárhestur. Fura frá Enni var einnig sérlega vel sýnd hjá Árna Birni Pálssyni og kæmi ekki á óvart ef hún ynni B úrslitin. Fimmtán hross af 30 í milliriðlinum fara í úrslit, átta keppa í A úrslitum, en ekki tíu eins og ranglega var farið með í frétt á vefnum fyrr í dag.

Niðurstöður úr milliriðli:

1           Hrímnir frá Ósi / Guðmundur Björgvinsson        8,89         
2           Loki frá Selfossi / Sigurður Sigurðarson        8,89         
3           Glóðafeykir frá Halakoti / Einar Öder Magnússon        8,74         
4           Álfur frá Selfossi / Christina Lund        8,70         
5           Freyðir frá Leysingjastöðum II / Ísólfur Líndal Þórisson        8,63         
6           Sveigur frá Varmadal / Hulda Gústafsdóttir        8,60         
7           Stefnir frá Þjóðólfshaga 1 / Viðar Ingólfsson        8,59         
8           Hlekkur frá Þingnesi / Eyjólfur Þorsteinsson        8,58         
9           Esja frá Kálfholti / Ísleifur Jónasson        8,58         
10           Gáski frá Sveinsstöðum / Ólafur Magnússon        8,56         
11           Segull frá Mið-Fossum 2 / Viðar Ingólfsson        8,56         
12           Fura frá Enni / Árni Björn Pálsson        8,55         
13           Gaumur frá Dalsholti / Guðmundur Björgvinsson        8,55         
14           Klerkur frá Bjarnanesi 1 / Eyjólfur Þorsteinsson        8,54         
15           Eldjárn frá Tjaldhólum / Halldór Guðjónsson        8,52         
16           Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu / Anna S. Valdemarsdóttir        8,51         
17           Möller frá Blesastöðum 1A / Helga Una Björnsdóttir        8,50         
18           Sleipnir frá Kverná / Jóhann Kristinn Ragnarsson        8,50         
19           Stígandi frá Stóra-Hofi / Ólafur Ásgeirsson        8,47         
20           Njáll frá Friðheimum / Hinrik Bragason        8,47         
21           Jódís frá Ferjubakka 3 / Hulda Finnsdóttir        8,46         
22           Klængur frá Skálakoti / Vignir Siggeirsson        8,42         
23           Lukka frá Kálfsstöðum / Mette Mannseth        8,41         
24           Bliki annar frá Strönd / Lena Zielinski        8,39         
25           Dalur frá Háleggsstöðum / Barbara Wenzl        8,36         
26           Dögg frá Steinnesi / Ólafur Ásgeirsson        8,34         
27           Sóllilja frá Álfhólum / Sara Ástþórsdóttir        8,31         
28           Dáti frá Hrappsstöðum / John Sigurjónsson        8,04         
29-30           Frakkur frá Laugavöllum / Berglind Ragnarsdóttir        0,00         
29-30           Krít frá Miðhjáleigu / Leó Geir Arnarson        0,00        

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link