Vegleg verðlaun í boði á Flúðum
Eitt skemmtilegasta mót ársins er framundan um næstu helgi þegar opið gæðingamót fer fram á Flúðum, auk hinna hefðbundnu flokka í gæðingakeppni verður keppt í tölti og 100 metra skeiði. Það er til mikils að vinna því vegleg verðlaun eru í boði í öllum flokkum fullorðinna og auk þess eru alls kyns gjafabréf og hinn og þessi varningur í verðlaun í yngri flokkum.
Skráning á mótið er í fullum gangi í gegnum sportfeng og lýkur í kvöld á miðnætti.
Peningaverðlaun í eftirfarandi flokkum
100.000 kr – A -flokkur
100.000 kr – B -flokkur
100.000 kr – A -flokkur áhugamanna
100.000 kr – B -flokkur áhugamanna
100.000 kr – T3 – tölt 18 ára og eldri
100.000 kr – 100m skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH