vegna ráðningu kennara við Reiðmanninn
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands hefur haldið úti fjölda námskeiða þar sem ráðnir eru kennarar í stuttan tíma og í afmörkuð verkefni. Hér er um svokallaða lausráðingar að ræða og því ekki skylt að auglýsa þessar stöður stundakennara. Það væri annað ef um fastar stöður væri að ræða…
Þetta á við í tilviki Önnu Valdimarsdóttur enda er hún ráðin til kennslu í afmarkað verkefni; Reiðmanninn sem byggir á röð námskeiða á vegum Endurmenntunar LbhÍ.
Hvað varðar ráðningar reiðkennara við Endurmenntun LbhÍ þá hefur verið horft til þess að viðkomandi hafi sem mesta og besta menntun, hafi sýnt fram á færni í faginu og hafi reynslu af reiðkennslu hérlendis og/eða erlendis. Þeir kennarar sem Endurmenntun LbhÍ hefur ráðið í gegnum tíðina hafa uppfyllt þessi skilyrði. Í tilviki Önnu Valdimars dóttur, þá hefur hún ekki lokið reiðkennaraprófi frá Íslandi en hún hefur til að bera mikla reynslu af reiðkennslu, þjálfun og tamningu hrossa. Hún hefur öðlast og sýnt mikla færni á þessu sviði og því er fyllsta traust til hennar borið.
Ásdís Helga Bjarnadóttir
Verkefnisstjóri hjá Endurmenntun LbhÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH