Veisludagur á Íslandsmótinu framundan

  • 4. júlí 2021
  • Fréttir

Framundan er í dag mikill hátíðardagur á Íslandsmótinu í hestaíþróttum hér á Hólum í Hjaltadal. Íslandsmeistara verða krýndir í hringvallargreinum, 100 metra flugskeiði auk samanlagðra sigurvegara í fjórgangs- og fimmgangsgreinum. Eiðfaxi mun fylgjast með deginum, flytja ykkur fréttir og viðtöl.

Fyrir þá sem heima sitja er hægt að horfa á þessa veislu á AlendisTV, góða skemmtun.

Dagskrá

Sunnudagur
10:00 Fjórgangur V1 / U
10:25 Fjórgangur V1 / F
10:50 Kaffihlé
11:00 Fimmgangur F1 / U
11:30 Fimmgangur F1 / F
12:00 Hádegishlé
13:00 Flugskeið
14:20 Tölt T2 / U
14:40 Tölt T2 / F
15:00 Tölt T1 / U
15:30 Tölt T1 / F

U= ungmenni
F = fullorðnir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link