Vel heppnað Sleipnismót

  • 30. maí 2021
  • Fréttir

Ragnhildur Haraldsdóttir stóð efst í tölti meistara henni á vinstri hönd er Hanna Rún Ingibergsdóttir sem varð í öðru sæti og átti frábæru gengi að fagna á mótinu,

Alþjóðlegu íþróttamóti Sleipnis lauk í dag með sannkölluðum úrslitadegi. Keppt var í hinum ýmsu greinum allt frá barnaflokki og upp í meistaraflokk. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með keppninni og þá sérstaklega úrslitum í meistaraflokki. Veðrið var misjafnt alla daga og má segja að mótið hafi tekist í alla staði vel þrátt fyrir veðrið.

Sérstaklega verður að minnast á það hversu knapar mættu prúðbúnir til leiks og létu ekki verðráttu slá sig út af laginu, sérstaklega keppendur í barnaflokki sem þóttu til fyrirmyndar.

Síðustu úrslit dagsins voru í T1 meistaraflokki þar sem Ragnhildur Haraldsdóttir fór með sigur á Úlfi frá Mosfellsbæ með 8,39 í einkunn en alls tóku 8 frábær pör þátt í þeim úrslitum. Hanna Rún Ingibergsdóttir sigraði keppni í fjórgangi meistara á Grími frá Skógarási með 7,63 í einkunn. Hanna Rún átti gott mót þar sem hún reið til úrslita í tölti, fjórgangi, fimmgangi og slaktaumatölti meistara. Þórarinn Eymundsson og Þráinn stóðu efstir í fimmgangi meistara, en viðtal við hann sem birtist á Eiðfaxa fyrr í dag má horfa á með því að smella hér. Jakob Svavar Sigurðsson varð efstur í slaktaumatölti meistara á Kopari frá Fákshólum með 8,42 í einkunn. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir varð samanlagður fjórgangssigurvegari meistara á Óskari frá Breiðstöðum og Sigursteinn Sumarliðason og Stanley frá Hlemmiskeiði 3 urðu samanlagðir fimmgangssigurvegarar.

Af öðrum áhugaverðum úrslitum má nefna sigur Ylfu Guðrúnar í fimmgangi ungmenna á Kolfinni frá Sólheimatungu en einkunn þeirra var 6,98. Hekla Rán Hannesdóttir sigraði í slaktaumatölti ungmenna á Þoku frá Hamarsey með nokkrum yfirburðum, 7,46. Þá er ekki annað hægt en að minnast á Jónínu Baldursdóttur sem fór lengri leiðina að sigri í fjórgangi ungmenna á Steinari frá Stuðlum en hún reið sig upp úr b-úrslitum í þeirri grein og endaði í efsta sæti í a-úrslitum.

Hér má nálgast öll úrslit frá mótinu.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link