Vel heppnaðir Járningadagar
Járningamannafélag Íslands hélt járningardaga hjá Eldhestum að dagana 11. og 12. Nóvember.
Meðal þess sem var á dagskrá var sýnikennsla, fyrirlestrar, verkleg þjálfun í formbreytingum. Leiðbeinandi var Daniel van der Blij. Daniel er vel þekktur járningamaður í heimalandi sínu Svíþjóð, en hefur einnig unnið sem járningamaður víða um heim m.a. á Íslandi, Noregi, Indlandi og Tanzaníu.
Daniel er vanur fyrirlesari og kennari. Hann hefur m.a, kennt við járningadeildir sænsku ríkisháskólana Wången og Strömsholm og vann einnig um tíma sem járningamaður á dýraspítalanum í Strömsholm.
Daniel hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, unnið til verðlauna á mótum oghlaut titilinn ”Járningamaðurársins” í Svíþjóð árið 2012.
Mikill áhugi var meðal félagsmanna og spunnust sennandi umræður um kennsluefnið, dagskrá járningadaganna þótti takast mjög vel.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing