Vel heppnaður fyrsti fundur vetrarins
Góð mæting var á fundinn og hlustuðu keppendur og aðstandendur á fyrirlesara með áhuga
Miðvikudaginn 13.nóvember fór fram fyrsti viðburður ársins er tengist Meistaradeild Líflands og æskunnar. En þá var haldinn fundur keppenda og mótshaldara og fór hann fram í reiðhöllinni í Víðidal. Á fundinum voru reglur deildarinnar kynntar ásamt því að tilkynnt var um keppnisdaga vetursins.
Þær systur Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur héldu fyrirlestur en þær eru landsþekktir íþróttamenn og landsliðskonur í fótbolta.
Eftirfarandi er dagskrá vetursins.
11.des kl.17.00 Kynning á liðunum í Líflandi
Jan (dagsetning síðar) Sýnikennsla (laugardagur) Veitingar í boð MLÆ – DÓMARA SPJALL
9.feb – 4 gangur í Spretti
23.feb – 5 gangur í Spretti
8.mar – T2 og flugskeið í gegnum höllina í Fáki
22.mar -Tölt í Fáki
Sýnikennsla og fundur fyrir gæðingafimina
4.apr – Gæðingafimi í Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH