Verða stökksýningar í barnaflokki felldar niður?

  • 11. október 2012
  • Fréttir
Verða stökksýningar í barnaflokki felldar niður?

Alls bárust 44 tillögur til Landsþings LH sem haldið verður 19. – 20. október nk. Fjórar þeirra fjalla um framkvæmd barnaflokks í gæðingakeppni.

Keppnisnefnd LH leggur til að neðri aldursmörk barnaflokks verði fest við 10 ár, þ.e. yngri börn en 10 ára á almanaksárinu megi ekki taka þátt í barnaflokki. Nefndin leggur áherslu á að ábyrgð foreldra er sé mikil en með því að fastsetja aldursmörk neðanfrá sé verið að koma  í veg fyrir að of ung börn séu að ríða verkefni sem þau ráði varla við.   

„Það er skoðun keppnisnefndar að reiðmennska á stökki hafi oft verið á ystu nöf undanfarið en vill frekar leggja áherslu á, bæði við keppendur og dómara að réttri útfærslu á stökkinu verði hyglt, þ.e. skipt sé mjúklega á hægt stökk á skammhlið, gerð sé greinileg hraðaaukning á langhlið og að hægt sé mjúklega niður, EKKI sé beðið um kappreiðastökk,“ segir m.a. í greinagerð Keppnisnefndar LH.

Þá beinir Hestamannafélagið Fákur þeim tilmælum til dómara í gæðingakeppnum að þeir fari eftir leiðaranum í gæðingadómum sínum varðandi dóma á stökki og kemur þar inn á slysahættu þegar sýnt er of hratt stökk, sérstaklega í barnaflokki.

Æskulýðsnefnd LH gengur enn lengra og leggur til að stökksýningar verði alfarið teknar úr sýningum barnaflokks. Þess í stað sýni börnin tölt og brokk. Fram kemur í greinagerð þeirra að áður hafi tillaga þess efnis verið felld:

 „Ljóst er að aukin hætta er í keppni í barnaflokki þegar kemur að stökki því hestakostur barnanna verður sífellt betri og öflugri. Betri hestakostur er það sem allir keppendur vilja en það er ekki en með því að hann verði einnig öflugri skapast sú hætta að börnin sem eru miskeppnisvön valdi ekki hestunum eins og glögglega mátti sjá á Landsmót í Reykjavík í sumar. Vissulega munu einhverjir knapar ekki geta komið með hross sín þar sem sýna þarf bæði brokk og tölt en er hestur sem ekki hefur bæði brokk og tölt, gæðingur ?

Áður hefur þessi tillaga verið lögð fram en verið felld og þeim tilmælum beint til foreldra og forráðamanna barnanna að gæta að því að þau hafi hestana í hendi. Ekkert hefur breyst í þeim efnum og heldur hafa óhöppin aukist en hitt síðan þessi tillaga leit dagsins ljós. Viljum við bíða eftir alvarlegum slysum?“

Hestamannafélagið Máni leggur til er til að  framkvæmd barnaflokks í gæðingakeppnum verði breytt þannig að barnaflokkur ríði sama verkefni og unglingaflokkur. „Oft hefur hurð skollið nærri hælum í framkvæmd barnaflokks í gæðingakeppnum undanfarinna ára  og nú er mál að linni.  Börnin ríða nákvæmlega sama verkefni og unglingar í íþróttakeppninni og geta vel riðið sama verkefni og unglingar í gæðingakeppninni.“

Sigurður Ævarsson formaður Keppnisnefndar LH skrifar grein í 4. tölublaði Eiðfaxa þar sem hann gerir gæðingakeppni barna að umræðuefni og spyr: Hvað er að gerast? – Greinina má lesa hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link