Verðlaun HRFH

  • 15. mars 2013
  • Fréttir
Verðlaun HRFH

 

„Á Aðalfundi Hrossaræktarfélags Hrunamanna  2013 sem haldin var á dögunum voru veitt verðlaun fyrir gott ræktunarstarf félagsmanna.

Ræktunarbú ársins: Efra-Langholt

Veitt voru verðlaun fyrir Ræktunarbú ársins, þau komu í hlut þeirra hjóna Berglindar og Ragnars í Efra-Langholti. Verðlaunagripurinn er mjög falleg stytta sem hrossaræktarfélag Tungnamanna gaf HRFH á  100 ára afmæli félagsins í fyrra.

4.hross frá þeim Berglindi og Ragnari fóru í 1.verðlaun en þau sem telja til stiga og eru skráð frá Efra-Langholti eru þau Váli 4.v, Ísadór 6.vetra og Draumsýn 5.vetra.

 

Efsti stóðhesturinn

Hljómur frá Túnsbergi stóð efstur stóðhesta með 8.35 í aðaleinkunn.  Eigendur og ræktendur Gunnar Kr. Eiríksson og Magga Brynjólfsdóttir í Túnsbergi. Hljómur er undan Ægir frá Litlalandi og Stöku frá Litlu-Sandvík

Efsta Hryssan

 Mónika frá Miðfelli 5 stóð efst með 8.15 í aðaleinkunn. Eigandi og ræktandi Magnús Gunnlaugsson í Miðfelli 5.  Mónika er undan Stála frá Kjarri og Aldvöku frá Miðfelli 5.

Auka bikar fengu þau Haraldur og Jóhanna á Hrafnkelsstöðum fyrir Reyn frá Hrafnkelsstöðum (8.18) sem ræktuð er af þeim, er ekki lengur í þeirra eigu,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link