Verðlaunaveitingar hjá Hestamannafélaginu Hring
Svavar Örn Hreiðarsson og Sproti frá Sauðholti á Stórmóti Þjálfa. Ljósmynd: Svana Karlsdóttir
Á heimsíðu Hestamannafélagsins Hrings á Dalvík kemur það fram að um helgina hafi farið athöfn í Hringsholti þar sem kjör á íþróttamanni Hrings var tilkynnt. Var athöfninni streymt á Facebooksíðu félagsins.
Svavar Örn Hreiðarsson hlaut flest stig í kjörinu eða 243,62 og var Anna Kristín Friðriksdóttir annar stigahæsti knapinn með 200,97 stig. Þetta var í fyrsta sinn sem Íþróttamaður Hrings er valinn samkvæmt nýjum reglum félagsins sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi þess í maí á þessu ári.
Við sama tækifæri var val á Hringsfélögum 2020 kunngjört og voru það Rúnar Júlíus Gunnarsson og Hólmfríður Stefánsdóttir ásamt þeim feðgum Sveinbirni Hjörleifssyni og Hjörleifi Sveinbjörnssyni fyrir ómetanlega aðstoð við hestamenn óveðursveturinn 2019-2020. Það er ómetanlegt fyrir félagskap eins og hestamannafélagið Hring að hafa innan sinna raða öflugt fólk sem er tilbúið að veita aðstoð þegar á þarf að halda og okkar félagskapur hefur á að skipa öflugu fólki sem alltaf er tilbúið að leggja sitt framlag fyrir félagið og félagana í Hring. Takk fyrir ykkar framlag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH