,,Verðmætt að ná að halda hátíðisdag sem þennan“

  • 26. júní 2020
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Þorvald Kristjánsson fyrir landssýningu kynbótahrossa

Landssýning kynbótahrossa fer fram á morgun á Hellu þar sem hæst dæmdu hross vorsins koma fram auk þess að sjö stóðhestar mæta með afkvæmahópa og taka við verðlunum til heiðurs- og 1.verðlauna fyrir afkvæmi.

Blaðamaður Eiðfaxa renndi á Hellu þar sem undirbúningur var í fullum gangi og knapar að prófa hross sín á vellinum en þar var einnig staddur Þorvaldur Kristjánsson við undirbúning fyrir morgundaginn. Þorvaldur var tekinn tali og spurður út í framkvæmd morgundagsins en viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Landssýningun verður í beinni útsendingu hér á vef Eiðfaxa og munu tilkynningar þess efnis birtast í kvöld þar sem hægt verður að kaupa sér aðgang.

Upplýsingar um viðburðinn má nálgast á vefsíðu Horses of Iceland með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar