Verður rannsóknum á sumarexemi hætt vegna fjárskorts?
Sumarexem er alvarlegt vandamál í útfluttum hrossum sem dregur mjög úr samkeppnishæfni íslenskrar hrossaræktar á alþjóðlegum markaði. Fyrir tólf árum var metnaðarfullu rannsóknaverkefni hleypt af stokkunum með það fyrir augum að draga úr tíðni sjúkdómsins með fyrirbyggjandi aðgerðum eða lækningu.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir sérfræðingur í ónæmisfræði á Keldum og Vilhjálmur Svansson dýralæknir og sérfræðingur í veirufræði á Keldum rita grein í nýútkomnu tölublaði Eiðfaxa þar sem sumarexemisverkefni Tilraunastöðvarinnar á Keldum og Dýrasjúkdómadeildar Háskólans í Bern í Sviss er lýst, en nú er svo komið að styrkfé til verkefnisins er á þrotum.
Hægt er að nálgast sjöunda tölublaðið Eiðfaxa í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér. Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið [email protected]. Þá munum við opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH