Verður þú ein(n) þeirra ALLRA STERKUSTU?
Úrtaka fyrir Ístöltið – þeir allra sterkustu verður haldin laugardaginn 24. mars og hefst hún kl. 20 í Skautahöllinni í Laugardal.
Síðasti skráningardagur er í dag, fimmtudaginn 22. mars og er tekið við skráningum á netfangið [email protected] fram til kl. 23:59 í kvöld! Það sem þarf að koma fram er nafn, kennitala og gsm-númer knapa, IS-númer, nafn og uppruni hests og að lokum kortanúmer fyrir skráningargjaldinu sem er kr. 5000.
Ef þú lumar á snaggarlegum töltara, skráðu þig til leiks og freistaðu þess að keppa við ÞÁ ALLRA STERKUSTU þann 31. mars n.k.
Landsliðsnefnd LH
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing