Verkefnastjóri Horses of Iceland
Íslandsstofa leitar eftir nýjum verkefnastjóra Horses of Iceland en hægt er að sjá auglýst starfið inn á alfred.is. Þar kemur fram að leitað er eftir einstaklingi sem hefur mikla þekkingu á íslenska hestinum og býr yfir góðri samskiptafærni og hæfni til að efla þátttöku hagaðila í verkefninu.
„Horses of Iceland (HoI) er markaðsverkefni sem er ætlað að auka verðmætasköpun sem byggir á ímynd íslenska hestsins og að hann verði þekktur á heimsvísu sem hesturinn sem færir fólk nær náttúrunni. Íslandstofa leitar að eldhuga til að leiða markaðsverkefni Íslenska hestsins á vegum Íslandsstofu og til að taka þátt í að efla samstarf og þátttöku hagaðila hérlendis og erlendis í verkefninu. Við leitum að einstaklingi sem hefur mikla þekkingu á íslenska hestinum og býr yfir góðri samskiptafærni og hæfni til að efla þátttöku hagaðila í verkefninu.“
„Æskilegt er að verkefnastjóri hafi árangursríka reynslu af stjórnun viðskipta- og almannatengsla og þekki vel til helstu þátta árangursríkrar verkefnastýringar sem og reynslu af utanumhaldi flókinna verkefna og áætlana.“ kemur fram í starfslýsingunni.
Hægt er að sjá meira um starfið HÉR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH